Eimreiðin - 01.07.1929, Side 114
298
SÁLRÆNAR RANNSÓKNIR
eimreiðin
manni aldrei nákvæmlega eins, þar sem bæði mismunandi
hiti, þrýsting, veltandi á fingri o. fl. hefur sín áhrif á útlit
mótsins. Alt hefur þetta komið fram við smásjárskoðun á
Walters-mótunum. Mótin hafa verið stækkuð alt að hundrað-
falt, og hafa þannig komið í ljós ýms líffæraleg smáatriði, sem
gætu ekki átt sér stað, ef mótin væru svikin.
Séreinkenni Walters og skapgerð. Allir, sem setið hafa að
staðaldri á fundum með Margery, eru sammála um það, að
persónuleiki Walters sé jafnan sá sami. Framkoma hans er
blátt áfram og eðlileg og fult samræmi í skapgerðinni. Hann
er »glaður og reifur« á fundunum og hefur stundum til að
nota óþvegin orð, ef honum fellur miður framkoma fundar-
manna. Hann talar um tilraunirnar við fundarmenn, en flytur
ekki ræður né skilaboð. Hann heldur því fram, að hann lif'
í fjögra víðátta tilveru, sem erfitt sé að skýra fyrir oss, sem
aðeins þekkjum þrjár víðáttur. Fleiri verur hafa gert vart við
sig hjá Margery en Walter, einkum í ósjálfráðri skrift, en
þær eru allar harla ólíkar honum, Jafnan virðist hann hafa
stjórninu á miðlinum og ráða því< hverjir fái að gera vart
við sig.
I/íxlskeyti. Ein tegund fyrirbrigðanna hjá Margery eru víxl-
skeytin svonefndu, og bar einkum mikið á þeim árið sem
leið. Þannig fóru fram yfir þrjátíu víxlskeytatilraunir í röð, su
fyrsta 4. janúar 1928, og stóðu í þrjá mánuði. Þessar víx''
skeytasendingar eru í því fólgnar, að skeyti koma fram á fleir*
en einum stað í einu á sama tíma, sem ein út af fyrir siS
sýnast vera meiningarleysa, en verða að samfeldum skilaboð-
um, þegar skeytin eru borin saman. Till þess að gefa nokkra
hugmynd um þessar skeytasendingar, er réft að skýra hér fra
einni tilrauninni eins og þeir dr. Richardson og E. E. Dudley
hafa lýst henni. Það er sú fimtánda í röðinni og fór fram 3-
marz 1928. Hún var framkvæmd þannig, að fjórir aðilar tóku
þátt í henni. Einn flokkurinn var á heimili Crandons lækms
í Lime-stræti 10 í Boston, og án miðils, annar í húsinu m".
70 við Chestnut-stræti í Boston um 200 metra í burtu, °3
var Margery þar viðstödd. Þriðji aðilinn var miðillinn Vah'
antine (í sambandsástandi) í New-Vork, í meira en 400 kíl°'
metra fjarlægð, og sá fjórði var dr. Hardwicke (í sambands