Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 216
XXIV
EIMREIÐII*
smíðaði, stækkaði þrisvar sinnum, en síðar gerði Galilei annan, sem
stækkaði alt að 30 sinnum. Galilei endurbætti einnig smásjána, en sá
sem fyrstur fann hana upp, var hollenzkur gleraugnasmiður frá Middel-
burg, Zakarias Jansen að nafni. Það var um 1590. Hiíamælinn fann
Galilei upp um 1600, en samverkamaður hans, Evangelista Torricelh,-
háskólakennari í Florens, fann upp loftþyngdarmælirinn árið 1643.
Frá Lick-stjörnuturninum í Kaliforníu er nú farið að kvikmynda
jarðstjörnurnar. Fyrsta kvikmyndin, sem gerð hefur verið í þessu skynl>
er af jarðstjörnunni Júpífer, og hefur hún vakið mikla eftirtekt alstaðar
þar sem hún hefur verið sýnd.
Radium er eitthvert undursamlegasta og jafnframt dýrasta efni, sem
til er. Gullhringur, sem hefur í sér 5 grömm af hreinu gulli, kostar ekkt
nema um 30 kr., en 5 grömm af radium kosta um 2 miljónir króna. Radium-
forði heimsins var árið 1923 aðeins 55 grömm. Það er ekki furða Þ®
radium sé dýrt, því úr 500 tonnum af Carnotit fæst aðeins 1 gramm af
radium, og til þess að ná því þarf 500 tonn af öðrum efnum, 1000 tonn
af kolum, 10000 tonn af efnahreinsuðu vatni og 100 manna vinnu 1
heilan mánuð. Radium er unnið í Ameríku, Kongoríkinu í Afríku 09
í Joachimsthal í Tékkóslóvakíu.
Styöjiö innlendan iönaö og
Verzlunin ÁFRAM
Laugaveg 18. Reykjavík.
verzliö viö ísl. kunnáttumenn.
Selur og býr til allar tegundir
af húsgögnum, jafnt fjaðra-
húsgögnum sem og öðrum.
Nýjar vörur koma með hverri skips-
ferð, svo allir viðskiftavinir vorir geta
fengið þau húsgögn, sem þeir óska.
Sendið pantanir yðar tímanlega. — Styðjið inn-
lendan iðnað og verzlið við íslenzka kunnáttumenn.