Eimreiðin - 01.07.1929, Page 83
EIMREIÐIN
RASPUTIN
267
VI.
Fáir munu hafa hlotið jafn einhliða og fjarstæða dóma
sem Qrigori Rasputin. Andstæðingar hans hafa niðrað honum
Iram úr öllu hófi, ekkert gott viljað viðurkenna í fari hans
°9 álitið hann jafnvel sjálfan djöfulinn. Hinsvegar hafa fylgis-
menn Rasputins sungið honum óspart lof og dýrð og álitið
hann heilagan mann. Hvorutveggja dómarnir eru fjarstæða.
®ri9ori Rasputin var hvorki djöfull né helgur maður. Margt
Verður honum til foráttu fundið. Lif hans var alla æfi bæði
trylt og taumlaust, og siðferðisskoðanir hans gjörspiltar.
Eti engu síður verður ekki komist hjá að viðurkenna, að
hann var mörgum góðum kostum búinn. Hann var hverjum
manni örlyndari, og þótt hann þægi mútur, þá mun þó mútu-
k®gni hans aldrei hafa verið sproítin af ágirnd. Hjálpfýsi
hans við fátæka og nauðstadda var viðbrugðið, og þótti hon-
Um vænt um að geta leyst vandræði sem flestra. Aldrei
k°m það fyrír, að hann reyndi að hefna sín á andstæðingum
sínum meg því ag þá setta í fangelsi eða gerða útlæga
M Síberíu, þótt áreiðanlega hefði honum verið það hægðar-
leikur. Hitt var ekki sjaldgæft, að hann léti náða ýmsa sak-
borninga, ef hann var sannfærður um sakleysi þeirra, og jafn-
Vel þótt andstæðingar hans ættu í hlut. Yfirleitt var hann
miklu hreinlyndari og heilsteyptari maður en flestir þeir, er
•^st áfeltust hann. Fór hann aldrei í felur með skoðanir
Slnar og skeytti ekki um, hvort þær komu mönnum betur
eða ver. Flærð og fláttskapur voru honum einlæglega á
móii skapi.
Annars mun Rasputin jafnan verða mönnum ráðgáta.
ann er fullur af öfgum og andstæðum, og sálarlíf hans
ar svo flókið og margþætt, að erfitt er að skilja hann til
fulls- Það eitt er víst, að hann hefur verið gæddur undra-
Verðum persónulegum mætti, sem olli því, að menn flyktust
Um hann. Hvaðan honum kom þessi máttur, getur enginn
s Vrt. þag er hjrjn miUli leyndardómur í lífi hans.
Eiður S. Kvaran.