Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 60
244
HVAÐ SKILUR?
EIMREIÐIN
milli línanna í fyrnefndum svörum þingfulltrúanna, geta menn
bezt gengið úr skugga um, með því að kynna sér þau, eins
og þau liggja fyrir í Alþingistíðindunum. Alþingi óx í augum
þjóðarinnar af framkomu sinni í þessu máli.
Það liggur nú nokkurnveginn í hlutarins eðli, að því aðeins
er mögulegt að koma fram uppsögn á sambandslagasamningn-
um, að allir stjórnmálaflokkar á Islandi séu einhuga um það.
Skilyrðin fyrir fullgildri uppsögn eru svo þröng, að þeim
verður því aðeins fullnægt, að allir atkvæðisbærir menn í
landinu leggist á eitt um það. Merkur norskur blaðamaður,
sem ég kyntist í Lundúnum skömmu eftir að sambandslögin
gengu í gildi, fann þeim ekkert eins til foráttu, þótt margt
hefði hann við þau að athuga, eins og uppsagnarskilyrðin í
18. grein. Mörgum hefur farið líkt og honum bæði hér heima
og erlendis, enda er því ekki að leyna, að nema vér stönd-
um sem einn maður, verður erfitt að koma fram sambands-
slitunum. En ef andinn frá alþingi 24. febrúar 1928 helzt
óbreyttur, er hættan í þessu atriði ekki ýkjamikil.
Þau tíðindi gerðust með yfirlýsingu dagsettri 25. maí síðast-
liðinn, undirskrifaðri af átján fremstu mönnum íhaldsflokksins
og Frjálslynda flokksins, að stofnaður er nýr stjórnmálaflokkur
á Islandi undir nafninu Sjálfstæðisflokkur. Stefnuskrá flokksins
er þessi: Island fyrir fslendinga — orð, sem hver flokkur í
landinu gæti vafalaust haft að einkunnarorðum sínum, án þess
að auðkenna sig með því í nokkru frá meginþorra lands-
manna í skoðunum. En stefnuskráin er nánar skilgreind, og
er sú skilgreining í tveim liðum. í fyrra liðnum er það tekið
fram, að hlutverk flokksins sé »að vinna að því og undirbúa
það, að ísland taki að fullu öll sín mál í sínar eigin hendur
og gæði landsins til afnota fyrir landsmenn eina, jafnskjótt og
25 ára samningstímabil sambandslaganna er á enda«. Þó að
hér sé á fyllri hátt til orða tekið en í svörum flokkafulltrú-
anna í nd. alþingis 24. febrúar 1928, verður ekki með neinu
móti ályktað af þessum stefnuskrárlið, að hinn nýi flokkur
hafi með honum mótað sérstöðu í sjálfstæðismálunum út á
við. Svipuð yfirlýsing liggur fyrir frá báðum hinum stjórnmála-
flokkunum í landinu. I fyrnefndu svari sínu við fyrirspurn Sig-
urðar Eggerz kemst forsætisráðherra svo að orði fyrir hönd