Eimreiðin - 01.07.1929, Side 70
254
RASPUTIN
EIMREIÐIN
fylgismaður Clysti-flokksins. Honum varð það einnig ljóst,
hversu allur bókstafslærdómur og helgisiðir kirkjunnar voru
einskisverðir fyrir sálarheill manna. Mest um vert var að
reyna að nálgast sem mest guðdóminn og öðlast heilagan
anda, eins og mörgum spámönnum Clysti-flokksins hafði tekist.
Sökti hann sjer nú niður í líf og kenningar þessara manna,
sem fullyrt var að hefðu staðið í sambandi við guð, og íaldir
voru sannheilagir menn. Eitt atriði vakti sérstaklega athygli
Rasputins. Sumir þessara spámanna höfðu verið hinir mestu
syndaselir og lifað mjög spiltu lífi áður en þeir tóku sinna-
skiftum og öðluðust heilagan anda. En bráft rakst hann á
skýringuna á því, hvernig það mátti verða. Allir menn hafa
tekið syndina í arf frá forföður vorum Adam, en menn geta
líka fæðst í annað sinn í andanum, hversu mikið sem þeir
hafa syndgað og orðið þannig hreinir af allri synd. En til þess
er nauðsynleg algerð sjálfsafneitun, deyðing holdsins og und-
irgefni undir vilja heilags anda. Þegar mönnum loks hefur
tekist að sigrast á syndaranum í sjálfum sér, er endurfæðing-
in fyrst hugsanleg. En sá, sem deyr þannig hinum leyndar-
dómsfulla dauða, er máttugur til mikilla verka. Hann er fasr
um að gera kraftaverk, lækna sjúka og jafnvel að reisa
menn upp frá dauðum og að sjá inn í ókominn tíma. Einnig
getur hann frelsað syndara frá kvölum helvítis og hjálpað
þeim til himnaríkis, og á efsta degi úthlutar hann mönnum
launum og refsingum. Þannig er hann orðinn að veru, sem 1
senn er guð og maður.
Allar þessar kenningar höfðu hin mestu áhrif á Rasputin.
Hann sannfærðist um, að margir þessara heilögu spámanna
hefðu verið innblásnir af guði eins og t. d. Jesús frá Naza-
ret. Vaknaði nú hjá honum áköf þrá, sem búið hafði í honum
frá því í æsku, eftir að líkjast þessum mönnum. Hann sá að
jafnvel hann, svo breyskur sem hann væri, mundi einnig geta
orðið hinnar himnesku sælu aðnjótandi og jafnvel orðið helg*
ur maður. Þegar honum hefði einu sinni tekist að deyja hin-
um »leyndardómsfulla dauða* og öðlast heilagan anda, S3*
engin synd freistað hans framar, því að þá voru allar hans
gerðir helgaðar af blessun andans. Eftir langar og miklar
íhuganir ákvað Rasputin að yfirgefa klaustrið og leggja út a