Eimreiðin - 01.07.1929, Síða 110
294
SÁLRÆNAR RANNSÓKNIR
EIMREIÐIN
burtu á þriðju hæð bakdyramegin í húsinu. Tekist hefur að
ná rödd Walters á hljóðrita á sama tíma og aðrar raddir
hafa komið í gegn hjá miðlinum. Allir gestir, sem á fundina
koma, eru látnir prófa raddvarnarvélina og beðnir að blístra
eða tala með slönguna uppi í sér. Engum hefur tekist það.
Baríum-vatns prófunin. Miðillinn er bundinn inni í byrginu.
I tveggja feta fjarlægð frá honum á borðinu stendur flaska
með baríum-upplausn. Ef andað er í gegnum þessa upplausn,
myndast hvítt botnfall í flöskunni. Kolefnið úr kolsýrunni, sem
maður andar frá sér, gengur í samband við baríum. Miðillinn
er látinn nota raddvarnarvélina, en á meðan heyrist Walter
tala, og á sama tíma heyrast bólur fara gegnum vatnið í
flöskunni, og sjálflýsandi glerkúla, sem sett hefur verið í flösk-
una, bæði heyrist og sést ganga upp og n’ður í vatninu.
Þegar flaskan er skoðuð, sést hvítt botnfall í henni, sem
reynist að vera baríum-kolasamband. Svo virðist sem þrenns
konar öndun hafi fram farið: miðilsins, Walters og í flösk-
unni. En þegar fundarmenn skýrðu Walter frá þessari ályktun
sinni, hló hann að þeim og Iét endurtaka tilraunina. En þa
fanst ekkert botnfall í flöskunni. Fundarmenn segjast ekki
vita, hvaða lofttegund hafi verið andað í flöskuna síðara
skiftið, en það gat ekki verið sú sama og áður, því hún hefð'
hlotið að orsaka botnfall.
Adflutningar og fráflutningar. A fundunum hafa gerst um
tuttugu aðflutningar (apports) og einn fráflutningur (deport)-
Mjög erfitt er að skýra þessi fyrirbrigði og einnig að hafa
eftirlit með þeim. Crandon læknir segist telja flutningafyrii"
brigðin einna ótrúlegust aílra dulrænna fyrirbrigða. Þó segis*
hann hljóta að viðurkenna, að þau gerist. Á fundunum hla
Margery hafa meðal annars komið fram lifandi dúfa, gimsteinar
og daggvot, nýútsprungin blóm. Hvernig þetta hefur komist
inn í fundarherbergið og hvaðan, segist hann alls ekki geta skýrt-
Ljósmyndir. Á fundunum eru ætíð hafðar að minsta kosti
þrjár ljósmyndavélar. Er ein í hverju horni og þannig u111
búið að taka má mynd undir eins og Walter leggur svo fyrllV
Tvær Ijósmyndavélarnar eru með linsum úr kvarzi, en ein er
rúmsæ með tveim glerlinsum. Filmurnár, sem notaðar eru við
myndatökuna, eru þær ljósnæmustu, sem hægt er að fa 3