Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1937, Blaðsíða 16

Eimreiðin - 01.07.1937, Blaðsíða 16
248 Á HVAMMSHEIÐI EIMREIÐIX fyr en of seint? Var ástríki hennar og nærgætni í minn garð, alla hennar síðari æfidaga, sprottið upp af trúarlegri skyldu- tilfinningu og von um laun í öðru lífi, fremur en vaxandi ást til mín? Hafði hún í rauninni, hennar insta þrá og eiginleg- asta ástúð, horfið frá mér til kirkjunnar, með prestinum og öllum almenningi — alveg eins og í draumnum? En nú á ég eftir að segja þér það, sem kynlegast er og dular- fylst. Þessi kona, sem hafði orðið mér til miklu minni ham- ingju í lífinu en ég vonaði i fyrstu og hún hefur sjálfsag't viljað, og sem svo hvarf í dauðann, þegar mér fanst, að nú væri loksins alt komið í lag milli okkar — hún hefur saint sem áður verið mér nokkurs konar spákona og hamingjudís í draumi, bæði lifs og liðin. Þetta hefur oft snert mig þannig sem á milli okkar væri einhverjir dularþræðir, upphaflegri en okkar jarðneska líf og hálfíausir við það öðru veifi. Þeir draumar, sem mig dreymir um hana, eru þeir einu draumar, sem ég get fyllilega reitt mig á og ráðið fyrirfram, að aðal- efninu til. Þetta kemur þannig fram, að þegar mig dreymii' hana með glöðu hragði og svo, að hún lætur vel að mér, þá er það jafnan mér fyrir góðu. Hafi ég þá eitthvað sérstakt fyr- ir stafni, má ég treysta því, að iir því rætist ákjósanlega. Dreymi mig hana hinsvegar fáláta og á þá lund, að hún forð- ast mig, þá er það mér fyrir illu. Þetta bregst ekki. Og nú skal ég segja þér seinustu draumana tvo um hana. Fyrri draumurinn var á þá leið, að ég þóttist staddur þar, sem við kyntumst fyrst. Mér þótti hún hafa gengið frá mér til fjand- manns míns og dvalið þar svo árum skifti, en vera nú farin þaðan og þangað, sem ég nú var staddur. Ég bjóst við, að liún væri þar einhversstaðar innanhúsa og spurði heimamann um hana, en var sagt, að hún væri lögð af stað heim til mín. Lengri var draumurinn ekki. í síðari draumnum þótti mér hún vera komin heim til míii og vera með miklu gleðibragði. En er ég nálgaðist hana, band- aði hún þó við mér og sagði: Vertu nú stiltur; þetta lagast hráðum alt saman. Og í sama bili þótti mér alt breytast kring- um okkur, verða undirbúið brúðkaupsveizlu og við ætla að gifta okkur í annað sinn — því eftir giftingunni forðum mundi ég í draurnnum. Lengri var hann ekki. — Það verður ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.