Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1937, Page 32

Eimreiðin - 01.07.1937, Page 32
264 ÆTTGENGI OG LÍFSSKILYRÐI eimreiðin erfðum, gerir það í raun og veru ekki. Um slíkar falserfðir má margt segja. Ég' skal aðeins nefna nokkur dæmi. Oft er talað um að ýmsir sjúkdómar gangi i ættir. Vanalega er hér ekki um erl'ðir að ræða, heldur smitast afkvæmin af foreldr- unum, annaðhvort þegar i líkama móðurinnar eða síðar, eftir fæðinguna. Er þá oft hægt að verja börnin smitun með því að taka þau frá móðurinni strax eftir fæðinguna. Hvelju-tegund ein, Hydra viridis, er græn á lit, og þessi litur gengur að erfðum kynslóð eftir kynslóð, að því er virðist. En svo var farið að athuga þetta nánar, og þá kom óvæntur árang- ur í ljós. Dýrið var alls ekki grænt í raun og veru, heldur staf- aði græni Iiturinn af þörungum, sem lifðu utan á dýrinu. Þegar egg mynduðust í dýrinu, settust þörungarnir strax að í eggj- unum og fylgdu þannig hinu unga afkvæmi, og svo koll af kolli. Skeljarnar og þaraþönglarnir, sem við finnum í fjörunni, eru oft alþakin hrúðurköllum og ýmsum fleiri dýrum, sem gera þau flekkótt að lit, og dýrin eru rösk við að fylgja með og komast á ungu kynslóðina, en erfðir eru þetta ekki. Alkunnugt er, að börn velja sér mjög oft sama Hfsstarf og foreldrarnir aðeins af því, að þau ha.fa vanist þessum störfum í æsku. Ýmsar venjur haldast líka við af sömu ástæðu, án þess að um erfðir sé að ræða. Tilraunir, sem gerðar hafa verið með dýr, benda í sömu átt. T. d. voru gerðar tilraunir með smá nag- dýr, sem kallast marsvín. Mænan í þeim var skemd viljandi. Dýrin urðu veikluð og tóku meðal annars upp á því að naga á sér tærnar. Afkvæmi þeirra gerðu þetta líka, og menn héldu, að þessi óvani gengi að erfðum. Seinna sannaðist, að svo var þó ekki. Það kom nefnilega í ljós, að dýrin nöguðu ekki ein- ungis sínar eigin tær, heldur lika tær unga sinna, og ungu dýrin lærðu þannig þennan ósið af foreldruin sínum. Það er líka hægt að venja ýms dýr, t. d. mýs, við að þola allmikið eitur, með því að gefa þeim lítið fyrst og smáauka svo við þær. Það, sem merkilegast er í þessu efni, er það, að afkvæmi þessara eiturhertu mæðra, þola lika eitrið vel og hetur en aðrar mýs. Mönnum dettur ósjálfrátt í hug sagan gamla um Sigmund og Sinfjötla, þar sem sagt er frá svipuðu. Tilraunir hafa sýnt, að þetta eru ekki eiginlegar erfðir, heldur falserfðir. Mæðurnar, sem vandar voru við eitrið, mynduðu gagneitur í líkamaxium,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.