Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1937, Page 48

Eimreiðin - 01.07.1937, Page 48
EIMREIÐlN Blindi-Jón á Mýlaugsstöðum. Eftir Guðmiind Friðjónsson. Hann inisti sjónina á barnsaldri, sofnaði uppgefinn af erli og rennvotur í fætur og vaknaði fárveikur af hita, höfuðverk og augnakvöl. Þannig sagði hann mér söguna þá, og í þeirri veikindalegu varð hann sjónlaus. Hann lifði í myrkrinu um 70 ár, hugrakkur og hraustur. En aldrei kvaðst hann gleyma þeiin ofhoðslegu þrautum, sem hann leið þau níu dægur, sem eldiu’ þjáninganna brann í augnatóftum hans og höfuðkúpu, og lvkt- aði þannig, að skjallhvít himna var þanin yfir sjáaldur augna hans, en rauður bólgulitur festur innan í hvarmana; og þar sat hann til æfiloka, sá bólgu þroti. Blindi-Jón var Mývetningur að ætterni. Hann taldi sig vera launson sr. Jóns í Reykjalilíð. (Guðrún, móðir Þorgils gjall- anda, mun hafa verið laundóttir hans.) Ekki var þó Blindi-Jón líkur Reykhlíðingum í sjón né heldur að hátterni. En karlmenni var hann að burðum, svo sem Reykhliðingar voru. Ég spurði gamla manninn eitt sinn um þessi mál. Hann sagði mér, að hann hefði spurt í'rétta móður sína að þessu leyti. Hún hrá á glens, gamla konan og mælti — út í hött: „Hvernig geturðu látið þér um munn fara þetta og annað eins, drengur! Þú sem ert af öllum talinn lifandi eftirmyndin hennar móður þinnar.“ Sumar konur, sem „lifað hafa æfintýr“, verða eigi mállausar, þó að þær sé „kallaðar fyrir rétt“. Ein kona í grend við móður Blinda-Jóns, en yngri miklu, var grunuð um að hafa átt sinn eina son með mikilsháttar manni, annarar húsfreyju, en sjálf þóttist hún vera vargefin. Sonurinn spurði móður sína eitt sinn um faðerni sitt. Hún leit út í eldhúsgluggann og saug upp í nefið og mælti svo, heldur dræmt: „Ekki er nú svo mikið um, drengur minn, að ég hafi nokkurntíma komist í hendurnar á manni.“ Stráksi fékk eigi fleiri orð af vörum móður sinnar. En svo virtist mér, sem hann kvngdi munnvatni sínu, þegar hann sagði mér þessa skrítlu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.