Eimreiðin - 01.10.1956, Blaðsíða 58
290
EIMREIÐIN
Þess vegna lýk ég máli mínu með hvatningu til allra, sem
eiga þess kost, að skrifa eftir öldruðu fólki örnefni, láta fylgja
lýsingu á landinu í kring og afstöðu hinna ýmsu staða hvers
til annars — og senda síðan þjóðminjaverði. Með slíku starfi
má hjarga ómetanlegum menningarlegum verðmætum.
☆
Það er harla eftirtektarvert, hversu ýmsir menn hafa með frábærum
dugnaði og aðfylgi komið sér í fremstu röð meðal þjóðar sinnar, þótt þe,r
væru í upphafi liinir öftustu, og síðan fært þjóðina alla á greiðari götu
en áður gekk hún, og er jafnan merkilegt að heyra frásagnir um, hverja
aðferð þeir hafa valið til slíks, hvað þeim hafi auðnazt að framkvæma og
hver aðdragandi hafi verið að framkvæmdum þeirra. Slíkar sögur hljóta
að vekja alla þá, sem heyra þær eður lesa, til að taka eftir, hvernig dæmi
slíkra manna gætu komið til nota, þar sem þeir eiga hlut að máli, og
geta einnig vakið eftirtekt manna á ýmsum hlutum, sem merkilegastir eru
og hver maður ætti að vita grein á.
Jón Sigurðsson.
Ef menn vilja reyna að gera sér grein fyrir lífstefnumannkyni fram-
tíðarinnar, þá verða þeir að hugsa sér jörð, þar sem ekki einungis engim'
er ljótur, heldur á engan liátt öðru vísi en íagur og fríður; enginn sjúkm ■
ekki einu sinni veill eða ósterkur; enginn illa innrættur, ekki einu sinm
á nokkurn hátt öðru vísi en göfugur; enginn fávís, ekki einu sinni ófróð-
ur um neitt af því, sem allt mannkyn varðar eða sérstaklega kemur dl
hans að vita. Þá verður um að ræða jörð, þar sem menn eru færir um að
vinna ótrúlega miklu merkilegri og stórkostlegri verk en unnin hafa
verið hér á jörðu hingað til.
Helgi Pjeturss.
Það er sjaldgæft, að menn lifi. Flestir eru bara til.
Oscur Wilde.
Skóli reynslunnar er dýr, en flónin fást ekki til að stunda nám í ne,n
um öðrum skóla.
Benjamin Franklin.