Eimreiðin - 01.10.1956, Blaðsíða 90
AFMÆLISNYJUNG SAMYINNUTRYGGINGA
HEIMILISTRYGGING
Samvinnutryggingar munu í tilefni tíu ára afmælis
síns hefja nýja tegund trygginga, sem kölluð er heim-
ilistrygging, og er við það sniðin að veita heimilum
sem víðtækast og fullkomnast öryggi. Heimilistrygg-
ing mun ná til bruna, sprengingar, tjóns af eldingu,
tjóns af hrapi flugvélar eða flugvélarhluta, vatns-
leiðsluskaða, innbrota og annars þjófnaðar, snjó-
flóða, stuldar barnavagns eða reiðhjóls, tjóns á far-
angri, þjófnaðar af mönnum í hótelherbergjum eða
þjófnaðar yfirhafna á veitingastað, og loks verður inni-
falin ábyrgðartrygging (t. d. ef börn valda tjóni) og
væntanlega slysatrygging húsmóður.
Þessi nýja trygging verður nánar auglýst innan
skamms, þegar hún hefst, og ættu allir heimilisfeð-
ur þá að kynna sér rækilega skilmála hennar og það
öryggi, sem henni er samfara.
SAEÆvnMMiu'irmYcEffinK’cKÆJE
Umboðsmenn um land allt.
V.