Eimreiðin - 01.10.1956, Blaðsíða 68
300
EIMREIÐIN
Mikil er trú þín, kona,
þá nótt, er þú líf þitt leggnr
i lófa hins ókumia manns
og svarar með einu orði
öllum spurningum hans.
Mikil er trú þín, kona.
Mikil er ást þin, kona,
i dag þegar langt er liðið
á 'líf ykkar — þitt og hans —
og enn skulu armlög þín vera
athvarf liins synduga manns.
Mikil er ást þin, kona.
EIMREIÐIN vill gjarnan birta sem fjölbreyttast efni,
og henni væri kærkomið, að lesendur hennar sendu henni
fróðlega og skemmtilega þætti um sérstæða og merka
menn og merkilega atburði, jafnt frá liðnum tírna og
líðandi stund. Þá óskar hún að fá greinar um ýinis þau
vandamál, sem verða lesendum hennar umhugsunarefni,
og ennfremur nýmæli, er menn kynnu að koma auga á
til bóta í menningarlegunr efnum, atvinnulífi eða Jrjóð-
arhögum.
Ritstjóri Eimreiðarinnar,
Pósthólf 1342, Reykjavik.
Að afnema trúna á persónulegan guð væri sama sem að nema sóli'ia
burt úr jarðstjörnukerfinu. Allt öðru máli er að gegna, hverjar hug-
myndir menn gera sér um guð; trúin á persónulegan guð hefur verið
Jrörf allra þjóða á öllum tímum, þó að stundum hafi þær villzt frá ln 1
í einhverju fáti.
BenecLikt Sveinhj. Gröndal■