Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Síða 24

Eimreiðin - 01.09.1968, Síða 24
170 ÉÍMREIÐÍS! foreldrar mínir höfðu — en þó leggja stund á skáldskapinn. Það hafði mikil áhrif á mig að alast upp á svo fjölmennu heimili, og ég hafði afargaman af því að umgangast og tala við hjú foreldra minna, og margt af þeim urðu trúnaðarvinir mínir. Ég var afar forvitinn um hagi og hegðun fólksins, og ég komst blessunarlega snemma að því, að til þess að öðlast trúnað og fá innsýn í viðkvæm leyndarmál þess, gilti að kunna að þegja um það, sem manni var sagt. Þá fékk maður meira að vita, og svo var hitt, að ég vissi, að gaspur gat koinið illu til leiðar. Móðir mín sagði líka við mig: „Það er gott að þú ert ekki eins kjöftugur og þú ert forvitinn!" Breyttar aðstæður í sveitunum við sjávarsíðuna ollu því, að for- eldrar mínir voru allt að því neydd til að flytja frá Lokinhömrum og stofna svipað heimili og önnur, er þá höfðu orðið til í smáþorp- unum vestra. Eftir þetta fannst mér allt fátæklegra og fáskrúðugra. Slíkar breytingar urðu reyndar víðast hvar annars staðar, er horfið var frá hinum fornu búskaparháttum. En þetta gerði landið og lífið allt öðru vísi en áður. Störfin urðu ekki eins margþætt og áður og jafnframt allólík því, sem viðgengizt hafði vestra um ár og aldir. En þó að þessi þróun yrði ekki umflúin, var sem ég kenndi sakn- aðar, og nú beindist hugur minn ákveðið að því að yrkja og skrifa um þetta horfna svið mannlegs lífs og menningar, og reyna að ná fram sérstæðum þáttum þeirrar fjölbreytni — og fábreytni —, sem einkennt höfðu líf þjóðarinnar, en voru nú að hverfa. Þetta hefur síðan einkennt mig sem sagnaskáld og þá, er ég hef ritað ævisögur einstakra manna, sem lifað liafa og starfað við aðstæður, sem ólíkar eru því, sem þekkjast í nútímanum. Næst ]rví að hafa verið svo lánsamur að alast upp á fjölmennu lieimili, er stóð traustum rótum í fornri íslenzkri menningarhefð, tel ég það liafa verið gæfu mína, hve snemma ég komst beinlínis í snertingu við bókmenntirnar. Á heimili foreldra minna var ávallt mikið lesið, og bækur urðu mér strax mikils virði. Svo var það, þegar ég 14 ára fluttist að Haukadal í Dýrafirði, komst ég í sýslu- bókasafnið á Þingeyri, og voru það fyrstu kynni mín af almenn- ingsbókasafni. Þarna voru og ekki aðeins íslenzkar bækur, heldur bækur á erlendmn málum. Meðan ég var í Lokinhömrum, hafði ég lært það mikið í dönsku, bæði af rnóður minni og Steingrími Jónssyni, síðar rafmagnsstjóra, sem var stjúpsonur föðurbróður míns, er bjó á næsta bæ, að ég gat skilið flest skáldrit á dönsku, og fljótlega komst ég einnig upp á það að skilja norskt ríkismál
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.