Eimreiðin - 01.09.1968, Blaðsíða 97
Tilkynning
frá Húsnæðismálastofnun ríkisins
Húsnæðismálastofnun ríkisins vill hér með benda væntanlegum
umsækjendum um íbúðarlán á neðangreind atriði:
1. Einstaklingar og sveitarfélög, sem hyggjast hefja byggingu íbúða
á árinu 1969 svo og einstaklingar, sem ætla að festa kaup á
íbúðum og sem koma vilja til greina við veitingu lánsloforða
húsnæðismálastjórnar árið 1969, sbr. 7. gr. A laga um Húsnæðis-
málastofnun ríkisins, skulu senda umsóknir sínar, ásamt tilskild-
um gögnum og vottorðum, til Húsnæðismálastofnunar ríkisins,
Laugavegi 77, Reykjavík, eigi síðar en 15. marz 1969. Umsóknir,
sem síðar kunna að berast, verða ekki teknar til greina við veit-
ingu lánsloforða á árinu 1969. Lánsloforð, sem veitt kunna að
verða vegna umsókna, er bárust eða berast á tímabilinu 16. 3.
1968 til og með 15. 3. 1969, koma til greiðslu árið 1970.
2. Umsækjendum skal bent á, að samkvæmt 2. gr. reglugerðar um
lánveitingar húsnæðismálastjórnar ber þeim að sækja um lán til
stofnunarinnar áður en bygging hefst eða kaup á nýrri íbúð
eru gerð.
3. Þeir, sem þegar eiga óafgreiddar umsóknir hjá Húsnæðismála-
stofnuninni, þurfa ekki að endurnýja umsóknir sínar.
4. Framkvæmdaaðilar í byggingariðnaðinum, er hyggjast sækja um
undanþágu um komutíma umsókna, sem þerast eftir ofangreind-
an skiladag, 15. marz, vegna íþúða, er þeir hafa í smíðum, skulu
senda Húsnæðismálastofnuninni skriflegar beiðnir þar að lútandi
eigi síðar en 15. marz n. k.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
RÍKISINS
Laugavegi 77 — Sími 22453