Eimreiðin - 01.09.1968, Blaðsíða 84
NORRÆNA BOKASYNINGIN
Af öllum þeim sýningum, sem haldnar hafa verið í Reykjavík í
vetur, hefur bókasýningin í Norræna húsinu tvímælalaust vakið
mesta athygli og átt mestri aðsókn að fagna. Þessi sýning er líka
nýjung og merkur viðburður í menningarsamstarfi Norðurland-
anna, eins og raunar fleiri þættir þeirrar starfsemi, sem fram hefur
farið í Norræna húsinu þá fáu mánuði frá því það var opnað. Eins
og kunnugt er, var haldin þar yfirgripsmikil list- og handiðnaðar-
sýning strax eftir vígslu hússins, 24. ágúst í sumar, og gaf hún glögga
hugmynd um þróun listiðnaðar Norðurlandaþjóðanna, en sú sýning
var flutt til Akureyrar, þegar henni lauk í Norræna húsinu, og í
ráði mun að svo verði einnig gert með bókasýninguna. Auk þessara
tveggja sýninga, sem efnt hefur verið til í Norræna húsinu, hefur
margvísleg önnur menningarstarfsemi farið jrar fram. Meðal annars
hafa verið fluttir nokkrir fyrirlestrar um norrænar bókmenntir og
fleira, og efnt hefur verið Jrar til ýmis konar samkomuhalds og
funda.
Það má því með sanni segja, að Norræna húsið hafi Jregar byrjað
að uppfylla þau fyrirheit, sem gefin hafa verið um stofnunina, en
við opnun hússins kom það meðal annars fram, að „ekkert það, sem
jákvætt er fyrir norrænt líf og norrænar athafnir, sé Norræna lnis-
inu óviðkomandi", enda er því ætlað að vera tengiliður milli ís-
lands og hinna Norðurlandanna og örva áhuga íslendinga á norræn-
um málefnum og efla samstöðu Norðurlandanna.
Fyrirhugað er, að í Norræna húsinu verði komið upp fullkomnu
safni norrænna bóka, og er bókasýningin fyrsti vísir þess, en stofn
bókasafnsins mun verða nokkur hluti þeirra bóka, sem á sýning-
unni eru. Auk sjálfs bókasafnsins verða svo látin liggja framini
vmis helztu dagblöð og tímarit, sem gefin eru út á Norðurlöndum,
og virðist þetta þegar njóta mikilla vinsælda meðal gesta hússins,
enda er kaffistofa þess tíðum þéttsetin af blaðalesendum.
Segja má, að norræna bókasýningin sé einstæður viðburður. Aldrei
fyrr hefur á einum stað verið saman kominn svo mikill fjöldi nýrra
norrænna bóka, og aldrei fyrr á einum stað gefizt svo glöggt yfirlit
yfir útgáfustarfsemi eins árs í hinum einstöku löndum. Að sjálf-