Eimreiðin - 01.09.1968, Blaðsíða 51
UNG SKALDKONA FINNSK
eftir
Baldur Pálmason
Lítið þorp utanvert við Ábo
eða Turku heitir Pargas og er í
eða við skerjagarðinn finnska.
Meðal íbúanna þar er ung
stúlka, sem heitir Ulla-Lena
Lundberg. Hún er rúmlega tví-
tug, fremur lág vexti og fín-
gerð, ljóshærð og bláeyg. Þessi
lýsing á við margar ungar stúlk-
ur hvarvetna um Norðurlönd,
en þegar ég bæti því við, að hún
gaf út ljóðabók 15 ára að aldri,
hefur ritað útvarpsleikrit, sem
vakið hafa athygli o. fl. o. fl„ þá
fer að verða óhætt að gera ráð
fyrir, að Pargas skáki flestum
stallþorpum sínum, jafnvel hvar
sem er á kúlu jarðar.
í janúar 1968 heimsótti ég
þessa ungu skáldkonu ásamt
fleira útvarpsfólki frá Norður-
löndum, og þágum við hjá henni
síðdegiskaffi. Hún hefur til um-
ráða nokkuð gamalt tvílyft og
járnklætt timburhús, fremur lít-
ið um sig. Móðir hennar, sem er
víst ekkja, á húsið, en er flutt
burtu, svo að Ulla-Lena og systir
hennar hafa það fyrir sig. Þarna
gaf að líta öndvegisbækur, ekki
sízt norrænar, margar í sænskri
þýðingu, og voru þar á meðal fá-
einar eftir Halldór Laxness.
Ljóðabókin hennar Ullu-Lenu
kom út 1962 og heitir Utgángs-
punkt — kannski héti hún Heim-
draganum hleypt á okkar máli,
— og hún hefur að geyma 30 ljóð,
órímuð eða mestmegnis svo.
Hafa skal í lruga, að Ulla-Lena
var aðeins 15 ára, þegar bókin
kom út, og flest ljóðin munu ort
þegar hún var árinu yngri. Fyrsta
kvæði bókarinnar heitir Stein-
höggvari, og birtist það, ásamt
nokkrum fleiri smáljóðum þess-
arar ungu skáldkonu, á öðrum
stað í þessu riti.
Árið 1964, þegar Ulla-Lena
var 17 ára, tók hún þátt í leik-
ritasamkeppni, sem norrænar út-
varpsstöðvar efndu til, og Iilaut
2. eða 3. verðlaun, minnir mig,
fyrir leikrit sitt Núll, sem hef-
ur að höfuðpersónu 16 ára
stúlku, og viðurkennir höfund-
ur, að þar hafi hún notað eigin
lífsreynslu sem ívaf og jafnvel
uppistöðu á köflum, og kvaðst
hún telja slíkt eðlileg vinnu-
brögð. Þetta leikrit hefur verið
leikið í útvarp í Noregi og Sví-