Eimreiðin - 01.09.1968, Side 54
200
EIMREIÐIN
sín frá síðara heimsstríðinu; ég
dreg mín dæmi úr nærtækari at-
burðum.
Víetnam ætti að vera okkur
nærtækasta kennslubókin í sögu.
Svo er okkur sagt að ekki sé
hægt að vinna sögu úr baráttu
fyrr en baráttunni er lokið.
Viðhorf okkar eru lituð áður
en baráttan er til lykta leidd.
Þegar henni lýkur byrjar mál-
verkið að skapast. Séð úr ákveðn-
um sjónarhornum: sanngirninn-
ar, orsakanna, málsvarnarinnar,
hugmyndafræðinnar, valdabar-
áttunnar, í ljósi minninganna,
með sögulega fjarvídd í huga og
skilgreiningu.
Víetnam er fyrirtæki æskunn-
ar: Það ræður gerðum okkar og
viðhorfum. Æskan er óreynd og
rík af hugsjónum. En ekki jafn
rík af hugsjónum og hinir mekt-
ugu vinir okkar í Washington,
— enda væri ósvinna að halda
slíkt.
Ég ólst upp rneðal fólks, sem
hataði Rússa. Nú er ég byrjuð
að læra rússnesku, og enginn hef-
ur neitt við því að segja. Þannig
breytir sagan sér. Ég ólst upp í
landi, sem var nauðbeygt til að
halda góðum tengslum við Sovét-
ríkin; nú er þetta samband land-
anna orðið mjög vinsamlegt. Ég
er þakklát landi mínu fyrir þá
framvindu mála.
Ég fæddist eftir stríðið. Og
það var ekki mitt stríð. Það voru
ekki mínir kunningjar, sem
féllu, ég þekkti þá ekki, —
hvorki sem menn eða hetjur föð-
urlandsins.
Ken fæddist eftir stríðið. Hann
fæddist eftir sprengjuna. Eftir
sprengjuna, — viðmiðunarstað í
tímatalinu. Hann snuddaði for-
vitinn kringum bandarísku her-
mennina á götunum í Osaka;
þeir höfðu hernumið land hans
að loknu stríði, sem hann átti
enga aðild að. Japanir báru sig
hyggindalega að, þeir vinsuðu
það bezta úr hernáminu, og
Bandaríkjamenn höfðu sig
hljóðalaust á brott — en fyrir
siðasakir héldu þeir herstöð
sinni á Okinawa, og nú eru farn-
ar mótmælagöngur í Japan og
rifizt mikið vegna hennar — og
þar eru á ferðinni þeir, sem áttu
ekki neinn þátt í stríðinu.
Hvil í friði: maðurinn drýgir
ekki slika synd öðru sinni. Þetta
er þýðing áletrunarinnar á
minnismerkinu í Híróshima. En
mannkindin lætur sig þá ekki
muna um að hafa í hótunum,
að Jregja í hel fréttir af slysum,
sem orsakast af ofgeislun, henni
er ómögulegt að gera sér grein
fyrir afleiðingunum af fyrri synd
sinni. — Við, sem fæddumst á
Honshu-eyju eftir sprengjuna
miklu, erum bara tilraunakanín-
ur annarrar kynslóðar, segir
Ken.