Eimreiðin - 01.09.1968, Blaðsíða 93
HAFÍS VIÐ ÍSLAND. Kvöldvökuút-
gáfati 1968.
I haust kom út allnýstárleg bók á
vegum Kvöldvökuútgáfunnar, og nefn-
ist hún Hafis við Island. Eins og nafn
hennar ber með sér, fjallar efnið um
hafís hér við land og samskipti manna
við þennan „landsins forna fjanda“,
en efni til bókarinnar leggja ýmsir, er
komizt hafa í náin kynni við hafísinn,
bæði nú hin síðustu hafísár og fyrr á
öldinni, auk [ress sem þarna er dreg-
inn saman ýmis konar fróðleikur unt
baráttu manna við hafísinn fyrr og
síðar og áhrif hans á líf fólksins á
helztu hafíssvæðunum.
I íormálsorðum segir meðal annars,
að með útgáfu bókarinnar sé þess
freistað að gera tilraun í þá átt að
fylla í tilfinnanlega eyðu í bókmnent-
um Sögueyjunnar, en frá landnámstíð
frani til þessa dags hafi hafísinn verið
tíður gestur við strendur landsins, en
þó hafi samfelld saga hans og baráttu
þjóðarinnar við hann um aldir ekki
verið skráð.
Um útgáfu bókarinnar sáu þeir séra
Sveinn Víkingur, Kristján Jónsson
borgardómari og Guttormur Sigur-
björnsson jarðfræðingur, og hafa þeir
skrifað drýgstan hluta hennar. Ber þar
fyrst að geta yfirgripsmikillar og fróð-
legrar vísindalegrar ritgerðar um hafís
og hafstrauma eftir Guttorm. Þá ritar
Sveinn Víkingur ýtarlega grein urn
hafísárið 1967—68 og rekur þar ræki-
lega prentaðar heimildir um hafískom-
una og hegðun issins. Þá hefur séra
Sveinn átt viðtöl við sjómenn og bænd-
ur af Skaga og víðar, sem komizt hafa
í náin kynni við hafísinn og það, sem
honum fvlgir, og á þessum samtölum
byggir hann skemmtilega og fróðlega
frásögn. Kristján Jónsson hefur fært í
letur frásagnir ýmissa, og er þar fyrst
að geta skilmerkilegrar og athyglis-
verðrar lýsingar Tryggva Blöndal skip-
stjóra á strandferðaskipinu Esju um
viðureign hans við hafísinn í fyrra-
vetur, er hann sigldi hvað eftir annað
urn hafíssvæðin meðfram ströndum
landsins. Einnig hefur Kristján skráð
viðtöl við þá Guðjón Guðmundsson
bónda og hreppstjóra á Eyri við Ing-
ólfsfjörð og Gest Guðmundsson á
Krossanesi, og loks ritar hann lýsingu
á ískönnunarflugi SIF, flugvélar Land-
helgisgæzlunnar. Af öðru efni í bók-
inni má nefna ritgerð eftir Jóhann
Pétursson vitavörð á Horni, skáldlega
skrifaða grein og glögga lýsing á sam-
skiptum Hornbjargsbúa við hafís.
vetrarhríðar og aðrar náttúruhamfarir
á þessuni norðlægu slóðurn, og loks
eru ritgerðir eftir Björn Friðfinnsson
bæjarstjóra á Húsavík og skólastjórana
Pálma Ólafsson, Sigurð Ó. Pálsson og
Kristján Ingólfsson.
I bókinni er fjöldi hafísmynda, og