Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Side 31

Eimreiðin - 01.09.1968, Side 31
R/ETT VIÐ HAGALÍN SJÖTUGAN 177 til þess að skýra það undarlega samband, sem er okkar í milli. Um árabil hefur hún búið við heilsubrest, og svo undarlegt sem það má virðast, er eins og einn- ig það hafi verið mér mikilsvert. Það liggur við, að ég hafi notið þess að þjást annað veifið, þeg- ar hún hefur verið veik, beinlín- is fundizt, eins og sú þjáning væri eins konar endurgjald fyrir allt það, sem ég hef með þessari konu fengið, og oft hef ég hugs- að sem svo: Það er undarlegt, að hún þurfi að líða næstum því að segja til þess að ég fái liðið eins og verðugt er — eða eins og mér er kannski nauðsynlegt. Að lokam berst samtalið að nútimabókmenntum, trúmálum og ýmsu fleiru, en um nútímabókmenntirnar sagði Hagalin meðal annars: Mér þykja þær skemmtilegar. Það er líf í þessu og fjölbreytni. Ég sé ekki betur en það komi fram furðu mörg góð skáldrit og enn fleiri skáldaefni. En þó hygg ég, að verk þeirra mundu verða veiga- meiri — en ef til vill færri — ef ekki væri kappkostað að fiska unga skáldhneigða menn í tízkunet, og leggja fjötra á persónuleika þeirra og eðlilegan og sjálfstæðan þroska, í stað þess að hlúa að þeim þannig, að hæfileikar þeirra fái notið sín til að finna það form og efni, sem þeim hentar bezt. Annars er það ekki að furða, þótt skáld- skapurinn beri nokkur einkenni síns tíma og þróist í samræmi við þau hverju sinni. Og hér hafa orðið miklar ytri breytingar á und- anförnum áratugum. Um aldir var þjóðin kvalin og pínd. Seinasta píningin voru kreppuárin fyrir síðustu heimsstyrjöld. En síðan var allt í einu stráð yfir fólkið gnægð matar, gulli og gersemum, og lífsþægindagræðgin hófst. Langsoltin þjóð fleygði sér yfir þetta allt, eins og hungruð kind yfir heysátu. Allir heimtuðu allt af öllum, og ráðamennirnir urðu ringlaðir og ráðvilltir — þótti óstætt á því að verða ekki við svo til einróma óskum og kröfum. En þrátt fyrir þetta æði, örvænti ég ekki um hag þjóðarinnar í framtíðinni. Hún 12 Frú XJnnur Hagalin.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.