Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Page 60

Eimreiðin - 01.09.1968, Page 60
206 EIMREIÐIN I. ÞÁTTUR Gjörist á Þingvöllum. Skafti lögsögumaður og Þórhallur úr Forsæludal talast við. Skafti: Vertu velkominn, Þórhall- ur bóndi. Sækir þú nú þing vort sem jafnan áður í fylgd með Vatnsdælagoðanum, Þórkatli kröflu. En hvort er ekki Ás- mundur bóndi á Bjargi með í flokki ykkar Húnvetninga? Þórhallur: Ekki er það. Þóttist hann nú orðinn of þungfær til þingreiðar og situr kyrr heima á búi sinu. Skafti: Tíðindi eru það, er slíkur höfðingi mætir eigi á þingi. Þó kemur jafnan maður í manns stað, eða hver var sá hinn ungi maður, er svo mjög bar af öðr- um mönnum í flokki ykkar, breiðleitur, rauðhærður og næsta freknóttur? Þórhallur: Þar muntu séð hafa Gretti Ásmundarson, er nú reið til þings í stað föður síns. Verð- ur ekki ofmælt um lireysti hans og harðfengi, en ódæll hefur hann þótt og brellinn nokkuð. Hefur oss og að því orðið í ferð þessari. Skafti: Hvað varð það tíðinda i ferð ykkar, er þú telur Gretti svo mjög til ámælis? Þórhallur: Missætti varð með þeim Gretti og Skeggja lniskarli frá Ási, og lauk svo þeirra við- skiptum, að Grettir vá hann. Skafti: Ekki er það giftusamlegt, að hefja þingreiðar með því að vega ferðafélaga sinn. Má vera, að ferðir Grettis til þings verði færri en efni standa til og ýmsir munu ætla. Þórhallur: Áður hafði Grettir stofnað til upphlaups á hesta- þingi, er haldið var við Mið- fjarðará. Skafti: Hvað bar þar til við hesta- atið, er varð til slíks ósættis með mönnum? Þórhallur: Þeir Bjargsmenn áttu hest góðan af Kengálukyni, er att var gegn hesti frá Mel. Grettir fylgdi hesti þeirra Bjargsmanna, en hinum Oddur ómagaskáld. Nú vildu þeir keyrissveinar veita hestum sínum styrk nokkurn, og kom svo, að þeir börðust. Lauk svo, að Grettir hratt hesti og svo manni út á ána, en hafði áður brotið þrjú rif í Oddi. Skafti: Óstýrlæti mikið var þetta og illa farið, að spilla svo góðri skennntan. Verður jafnan mönn- um slíkum, sem þú segir frá Gretti, slysasamt. Gefst og löng- urn illa ofmetnaðurinn. Þórhallur: Litlu varðar mig hvorir eiga liögg í annars garði þeirra Miðfirðinga, en því er ég nú kominn á þinn fund, Skafti, að eg vil bjóða þér fala hesta þá tvo Ijósbleiku, er þig fýsti svo rnjög að kaupa á síðasta þingi, og njóttu fvrir vináttu þinnar. Skafti: Þetta er vel boðið, og víst er mér enn hugleikið til hest- anna, en hér mun þó eitthvað undir búa. Þórhallur: Það er almæli, að þú leggir ráð það til með hverjum manni, sem duga má, ef ekki er

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.