Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Síða 79

Eimreiðin - 01.09.1968, Síða 79
UNGUK PRESTUR FINNUR GUÐ SINN í IIREIFBÝLINU 225 inni gleymst að þakka Guði - fyrir allt! Presturinn ungi gat ekki al- mennilega áttað sig á þessu. Ekki virtist honum Guð vera í Ríkis- útvarpinu. Og þó var þar út- varpað guðsþjónustu einu sinni og tvisvar á hverjum helgum degi. Þar voru lesnar og þuldar mjög misjafnar ræður að efni og flutningi. Oft góðlátlegt rabb og meinlaust, en oftast ósköp óper- sónulegt. Og alltof oft voru ræð- ur þessar fluttar með hrúfri rödd °g óþjálfaðri, eða þá þulið hrað- fari útí kaldan bláinn. Jafnvel Faðinmr lesið í spretti, eins og mikið lægi við að komast sem allra fyrst í sitt „daglega brauð.“ — Stundum voru þar fluttar skrúðorðar og hálf-heimspeki- legar ræður, og lesnar vandlega skráðar bænir. En allt virtist þetta einskonar útvarpsfréttir, fluttar af mjög misjafnlega hæf- um þulum — og sumum alger- lega óhæfum — eins og í sjálfu útvarpinu. Honum virist allt þetta svo ópersónulegt og utangátta. Tíð- ast var eitthvert tómahljóð í þess- um útvarpsflutningi. Hér var ekki samtal lijartans við Guð sinn í bæninni. Né vængjablak Guðs anda yfir ræðum prest- anna, jafnvel ekki á hátíðlegustu stundum. Honum virtist skorta flest það, sem hann sjálfur þráði svo heitt: lyfting andans lotning og hugljómun, víðsýni útyfir reginvíðáttur mannsand- ans og óræð undirdjúp sálarinn- ar. Bergmál Guðs í sál flytjanda orðsins, er gæfu henni vængi og orðum hans andríka fyllingu. Þó voru eflaust allir þessir „útvarpsprestar“ góðir menn og velmeinandi. Sumir jafnvel landskunnir gáfumenn og lærð- ir vel. —• Hvað skorti? — Var það hljómgrunnur sálar þeirra, sem eigi væri jafn tónnæmur fyrir bergmáli Guðs og tréhjarta org- ansins, sem fyllti kirkjuhvelfing- una helgum hljómbylgjum pípna og söngs? Stafaði þetta af því, hve lítið virtist vandað til efnis, máls og meðferðar? Guði voru ósjaldan boðnir andlega snauðir sálmar og jafnvel böngu- legt hnoð. — Var þá Guði raun- verulega boðlegt hvaðeina í bundnu máli og óbundn, ef að- eins ætti að heita guðsorð? — Og eins í söng: Væru hátíðasöngvar og aðrir víxlsöngvar prests og safnaðar eða kórs raunverulega andleg upplyfting, þótt prestur t.d. væri bæði ósöngvinn og raddvana? Ungi presturinn hafði ætíð hugsað sér fegurð og list sem lifandi neista af guðseðli manns- ins, — geislamagnað útstreymi af guðsþrá hans, — því hreinna og magnaðra, sem sálarþroski mannsins og guðsvitund var meiri og sterkari. 15
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.