Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1968, Page 86

Eimreiðin - 01.09.1968, Page 86
232 EIMREIÐIN Hluti af bókasafnssal Norrcena hússins, þar sem bókasýningin er haldin. hér geti talizt jafn alhliða og menningarleg. Flestar eru íslenzku bækurnar í flokkunum skáldrit og blandað efni. Þá eru og allmargar barna- og unglingabækur, ævisögur og fornrit, en örfáar bækur í öðrum flokkum, t. d. aðeins tvær í málfræði. Það er eftirtektarvert, að í flokkunum félagsfræði, uppeldisfræði og kennslumál er engin íslenzk bók, engin um hagnýt fræði, ekkert leikrit, engin bók um listir, engin bókmenntasaga, og þannig mætti fleira telja. Til saman- burðar má geta þess, að frá hinum löndunum eru samtals 70 bækur undir flokknum bókmenntasaga og 34 um listir. Ef sýningin er skoðuð í ljósi þessara staðreynda, má líta á hana sem áminningu fyrir Islendinga, bæði fræðimenn í ýmsum greinum og aðra rithöfunda, og síðast en ekki sízt fyrir útgefendurna sjálfa, sem sjaldnast verður skotaskuld úr því að verða sér úti um erlendar bækur til þýðinga, ef þær eru taldar líklegar sem sölubækur, en virðast hirða minna um að korna á framfæri í íslenzkum þýðingum fræðibókum um hin ýmsu svið mannlegra viðfangsefna og samfélags- mála, s. s. í listum og vísindum. En kannski verður jressi norræna bókasýning einmitt til þess að opna augu manna fyrir fábreytni og einhæfi íslenzkrar bókaútgáfu, þegar hún er borin saman við bóka- útgáfu hinna Norðurlandaþjóðanna, og hefur sýningin þá vissulega ekki farið erindisleysu í sali Norræna hússins. I. K.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.