Tímarit lögfræðinga - 01.01.1968, Blaðsíða 58
til beggja lögmannanna, sem greiðist úr ríkissjóði, þótti
hæfilega ákveðin kr. 13,200,00, en rétt þótti að stefndi
greiddi til ríkissjóðs kr. 10,200,00 í málskostnað, og var
þá tekið tillit til þess, að ekki væri rétt, að stefndi greiddi
þann viðbótarkostnað, sem af þvi leiddi, að nýr lögmað-
ur tók við máli stefnanda meðan það var rekið fyrir bæj-
arþinginu. Þóknun til lögmanns stefnda þótti hæfilega
ákveðin kr. 11,325,00 og greiddist sömuleiðis úr rikissjóði.
Dómur Bþ. 15. júli 1965.
1 öðru bæjarþingsmáli, sem dómur féll í þann 3. septem-
ber 1965 var S gert að greiða B kr. 70,000,00 i ráðskonu-
kaup, en í því tilfelli höfðu aðilar málsins búið saman
um 35 ára skeið og eignast saman sex börn, en þó ekki
gengið i hjúskap. I forsendum dómsins segir, að við
ákvörðun fjárhæðar sé tekið tiltit til þess, að B hafi ver-
ið heilsuveil, en hins vegar megi ætla, að hún hafi unnið
heimilistörfin eftir því sem heilsa hennar og geta hafi
leyft. Þess má geta, að stefnukrafan í máli þessu var, að
S yrði gert að greiða B kr. 417,737,52 i ráðskonukaup,
ásamt vöxtum og málskostnaði, eins og málið væri eigi
gjafsóknarmál, en í þessu máli fékk B gjafsótn.
Framkrafa vátrygg'janda.
I máli, sem vátryggingafélag höfðaði gegn sendibilastöð
nokkurri hér i bæ, voru sakaratvik þau, að þann 25. júni
1959 afhenti Tóbakseinkasala ríkisins 5 pakka af tóbaki
til flutnings vegna Verzlunarsambandsins h.f., á af-
greiðslu stefnda. Verðmæti sendinga þessara nam alls kr.
32,369,50. Sendingin skyldi fara til Verzlunarfélags Siglu-
fjarðar á Siglufirði. Stefnandi hafði vátryggt sendingu
þessa fyrir farmsendanda, þ. e. Verzlunarsambandið h.f.
Þrír pakkar af fyrrgreindri sendingu, samtals að verð-
mæti 20,258,00 lcomu aldrei til skila og ekki tókst að
56
Tímarit löqfræðinga