Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Blaðsíða 11
9
hjálp 0g nauðsynleg félagshjálp, svo og réttindi til örygg-
is gegn atvinnuleysi, veikindum, örorku, fyrh*vinnumissi,
elli eða öðrum áföllum, sem skorti valda og hann getur
ekki við gert.
2) Mæðrum og börnum ber sérstök vernd og aðstoð,
ÖH börn, skilgetin sem óskilgetin, skulu njóta sömu fé-
lagsverndar.
26. grein.
1) Hver maður á rétt til menntunar. Skal hún veitt ó-
^eypis, að minnsta kosti barnafræðsla og undirstöðu-
^enntun. Börn skulu vera skólaskyld. Iðnaðar- og verk-
ftam skal öllum standa til boða og æðri menntun vera
ellum jafnfrjáls, þeim er hæfileika hafa til að njóta
hennar.
2) Menntun skal beina í þá átt að þroska persónuleika
e'ustaklinganna og innræta þeim virðingu fyrir mar.u-
1>ettindum og mannhelgi. Hún skal miða að því að efla
skilning, umburðarlyndi og vináttu meðal allra þjóða,
kynþátta og trúarflokka og að efla starf Sameinuðu þjóð-
uuna f þágu friðarins.
3) Foreldrar skulu fremur öðrum ráða, hverrar mennt-
unar börn þeirra skuli njóta.
27. grein.
Í) Hverjum manni ber réttur til þess að taka frjálsan
þátt í menningarlífi þjóðfélagsins, njóta lista, eiga þátt
1 framförum á sviði vísinda og verða aðnjótandi þeirra
gæða, er af þeim leiðir.
2) Hver maður skal njóta lögverndar þeirra hagsmuna,
1 andlegum og efnalegum skilningi, er leiðir af vísinda-
vei*ki, ritverki eða listaverki, sem hann er höfundur að,
hverju nafni sem nefnist.
28. grein.
Hverjum manni ber réttur til þess þjóðfélags- og milli-