Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Blaðsíða 88
Stofnun lagaskóla
Á þessu ári eru 60 ár liðin siðan lagaskóli tók til starfa
hér á landi.
Baráttan fyrir stofnun slíks skóla átti sér langan ald-
ur eins og kunnugt er og var mjög tengd kröfunni um
stofnun háskóla. Fyrstu lögin um stofnun lagaskóla er
staðfestingu konungs hlutu voru lög 4/3 1904, en í þeirn
lögum var ákveðið, að skólinn tæki til starfa, ,þegar fé
yrði veitt til hans á fjárlögum. Dráttur varð þó á því.
Árið 1907 var lögunum dálítið breytt, og þau síðan gefin
út sem lög nr. 37, 16/11 1907. 1 hinum nýju lögum var
þó enn ákvæðið um, að skólinn tæki ekki til starfa fyrr
en fé yrði veitt til hans á fjárlögum. Það var gert á fjár-
lögum fyrir árin 1908 og 1909. Fjárveiting nam kr. 4650.00
fyrir árið 1908 og kr. 8870.00 fyrir árið 1909. Skólinn tók
til starfa haustið 1908. Kennarar voru tveir, þ. e. forstöðu-
maður (Lárus H. Bjarnason) laun kr. 4000,00, og kenn-
ari (Einar Arnórsson) laun kr. 2800,00. Reglugjörð fyrir
skólann var gefin út 27. ágúst 1908 nr. 107 og fékk hún
gildi 1. okt. s. á. Þann dag tók skólinn til starfa með 6
nemendum, en tveir bættust við síðar um haustið.
Eins og kunnugt er starfaði skólinn einungis 3 ár, því
að 1911 tók Lagadeild Háskóla Islands við hlutverki hans.
Um skólann og lagakennslu hér á landi má m. a. vísa
til ritgerða þeirra prófessoranna Ólafs Lárussonar og Ól-
afs Jóhannessonar í Ulfljóti 3. thl. V. árg. og 3. tbl. XI.
árg. sbr. og 2. h. XI. árg. þessa rits og grein Ármanns
Snævarrs prófessors: Hugleiðingar um lögfræðikennslu
og lögfræðinám í bókinni: Vísindin efla alla dáð, er gefin
var út á 50 ára afmæli háskólans.
ThBL.
148
Tímarit lögfræðinga