Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Blaðsíða 76
anda brjóta svo mjög í bága við 88. gr. laga nr. 85/1936
og 105. gr. sömu laga, um það, að málið liggi nokkurn-
veginn skýrt fyrir i fyrsta þinghaldi, að ekki yrði hjá þvi
komizt að vísa málinu frá dómi.
Stefnda var dæmdur málskostnaður kr. 700,00. Dómur
uppkv. 12. maí 1965.
Dómar í nokkrum skriflega fluttum málum
frá árinu 1968.
Hér á eftir verða reifaðir nokkrir dómar í víxilmálum,
tékkamálum og smáskuldamálum, sem hafa verið skrif-
lega flutt, vegna útivistar stefnda. Allir dómarnir eru frá
árinu 1968 og sýna ýmis afbrigði þessara mála. 1 flestum
tilfellum er um að ræða frávísunardóma ex officio, eða
sýknudóma, og gefa dómarnir því nokkra hugmynd um,
hvað oftast skortir á í málatilbúnaði i þessum algengustu
dómsmálum fyrir bæjarþingi Reykjavikur. Dómarnir sem
hér eru reifaðir hafa ekki verið kærðir eða þeim áfrýjað.
Hafa dómarnir því fordæmisgildi varðandi dómvenju í
þessum málum hjá embætti yfirborgardómara í Reykja-
vík.
Víxlar — Greiðslustaður.
Mál þetta var höfðað á hendur samþykkjanda víxla til
innheimtu víxlanna. Stefnda hafði ekki sótt þing í mál-
inu.
Máli þessu var vísað frá hæjarþinginu, en í forsend-
um dómsins segir m. a. svo: „Dtgáfustaður víxlanna er i
Keflavík. Á öllum víxlunum er eftirfarandi í meginmáli
m. a.: „Víxillinn greiðist í Verzlunarbanka Islands h.f."
Til viðbótar hefur verið skráð „útibúi, Keflavik“. Hið
síðastnefnda hefur síðan verið strikað út. Engin skýring
er gefin á þessari útstrikun í skjölum málsins.
Eins og kunnugt er hefur Verzlunarbanki Islands h.f.
útibú á mörgum stöðum á landinu. Framlagðir víxlar bera
þannig ekki með sér tvímælalausan greiðslustað. Skýr til-
136
Tímarit lögfræðinga