Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Qupperneq 70
hefðu á þriggja mánaða uppsagnarfrestinum numið sam-
tals kr. 16,426,31 (en það var stefnukrafan í málinu).
Stefnandi hafi hafið starf í byggingarvinnu hinn 10. ágúst
1958 og hafi verið í þvi starfi til 6. september s. á. Þrátt
fyrir áskoranir stefnda hafi stefnandi þó eigi upplýst, hver
laun hann hefði haft á þeim tíma. Þótti því mega fallazt
á þá fullyrðingu stefnda, að þessi laun hafi ekki verið
lægri en þau laun, sem hann hefði haft hjá stefnda. Þann
6. september 1958 hafi stefnandi byrjað skrifstofustarf og
hafi laun hans þar numið kr. 4.900,00 á mánuði. Að ölln
þessu athuguðu þóttu bætur stefnanda vegna hinnar ólög-
mætu uppsagnar hæfilega ákveðnar kr. 1500,00.
Stefndi var einnig dæmdur til að greiða málskostnað
kr. 1300,00. Dómur uppkv. 23. febrúar 1965.
Verzlunarkaup — riftun — söluskilmálar.
1 máli, sem tékkneskt fyrirtæki C, höfðaði gegn H.
nokkrum gerði stefnandi þær kröfur, að stendi yrði dæmd-
ur til að greiða honum tékkneskar krónur 2,746,24 ásaml
vöxtum og kostnaði.
Stefndi krafðist sýknu og málskostnaðar.
Málavextir voru þeir, að þann 27. apríl 1961, pantaði
stefndi barnateppi hjá stefnanda skv. sýnishorni og
staðfesti pöntunina hinn 25. maí s. á. Teppin voru
afgreidd með sölureikning, dags. 23. steptember 1961, og
komu þau hingað til landsins 16. október s. á. Ekki leysti
stefndi vörusendingu þessa til sín og bar fyrir sig, að
teppin væru gölluð.
Teppin voru rannsökuð í atvinnudeild Háskóla Islands
og einnig mátu dómkvaddir matsmenn þau.
Stefnandi reisti dómkröfur sínar á því, að óvéfengt
væri, að stefndi hefði pantað teppi þessi, þau hafi verið
send honum og átt að greiðast út í hönd gegn afhend-
ingu viðkomandi skjala. Sýknukröfum stefnda andmælti
stefnandi og færði eftirfarandi atriði andmælum sínum
til stuðnings.
1 fyrsta lagi væri ósannað, að teppin hafi verið gölluð,
130 Tímarit lögfræðinga