Tímarit lögfræðinga - 01.06.1968, Blaðsíða 79
IV.
B. í Reykjavík, höfðaði mál gegn G. Egilsstöðum, og fyrir-
tækinu H. h.f. í Reykjavík, til greiðslu víxils að fjárhæð
kr. 8,800,00, útg. 20. maí 1967 af stefnda H. h.f., en sam-
þykkts af stefnda G., til greiðslu í Búnaðarbanka Islands,
Egilstaðakauptúni, 29. júlí 1967. Víxillinn var ekki af-
sagður, en útgefandinn var ábekingur. Vaxta- og máls-
kostnaðar var krafizt eins og venjulega.
Við þingfestingu málsins þann 4. apríl 1968 féll stefn-
andi frá öllum kröfum á hendur fyrirtækinu H. h.f.
Reykjavík, enda var stefna ekki birt á það fyrirtæki. Mál-
ið var síðan dómtekið gagnvart stefnda G. einum. Stefndi
G. sótti ekki þing né lét sækja þing fyrir sig og var mál-
ið þá dæmt eftir 118. gr. laga nr. 85/1936.
I niðurstöðu dómsins sagði svo: „Greiðslustaður um-
stefnds víxils er í útibúi Búnaðarbanka íslands, Egilsstaða-
kauptúni. Stefnandi virðist hafa ætlað að notfæra sér
heimild í 83. gr. laga nr. 85/1936 og höfða mál þetta fyrir
bæjarþingi Reykjavíkur. Nú er á það að líta, að fram-
lagður víxill hefur ekki verið afsagður og átti því stefn-
andi engan víxilrétt á hendur útgefanda víxilsins, enda
er ekki stefna birt gagnvart honum. Hér er þvi augsýni-
lega verið að fara í kringum varnarþingsreglur laga nr.
85/1936. Af þessum sökum verður málinu ex officio vís-
að frá dómi.
Þess skal og getið, að framlagður víxill er óstimplaður-
sbr. 35. gr. laga nr. 45/1921, en slíkt varðar sektum sbr.,
45. gr. sömu laga. Málskostnaður dæmist eigi.“ Dómur-
uppkv. 8. apríl 1968.
Um stefnubirtingu.
I.
F. höfðaði mál gegn Stanley Axelssyni til greiðslu víx-
ils að fjárhæð kr. 23,500,00, útgefins 14. ágúst 1966 af
stefnanda en samþykkts af stefnda til greiðslu í Lands-
Tímarit lögfræðinga
139