Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Síða 47
Gisli Guðmundsson, aðstoSaryfirlögregluþjónn
Arnar Guðmundsson, deildarstjóri
rannsóknarstofnana Háskólans. Þetta á sérstaklega við um ýmsar
efnafræðilegar athuganir. I lögum um meðferð opinberra mála nr.
74/1974 35. gr. 6. tl. er tekið fram, að lögreglu beri að hlutast til um
sérfræðilega rannsókn á mönnum, munum og vettvangi eftir því sem
ástæða þykir til, svo sem blóðrannsókn og aðra læknisrannsókn, efna-
og eðlisfræðilega rannsókn, leturrannsókn o. fl. Hafa smátt og smátt
komist á starfsleg tengsl milli rannsóknarlögreglu og stofnana, sem
hafa yfir að ráða slíkri sérfræðiþekkingu.
DEILDASKIPTING INNAN RANNSÓKNARLÖGREGLU
Innan rannsóknarlögreglu eru nú, að sögn Hallvarðar Einvarðsson-
ar, þrjár deildir auk tæknideildar. Tæknideildin er í stjórnunarlegum
tengslum við I deild. Hallvarður lagði hins vegar áherslu á það, að
deildaskiptingin væri enn í mótun.
I. deild stjórnar Þórir Oddsson, vararannsóknarlögreglustjóri, og
141