Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Side 54
Málafjöldi frá því að rannsóknalögregla ríkisins var stofnuð 1. júlí
1977 og til loka þess árs var alls 1751.
Þjófnaðir voru 1032.
Árásir voru 97 (hér er átt við allar líkamsmeiðingar).
Skemmdarverk voru 79.
Svik-fals voru 268.
Slys voru 28.
Brunar voru 53 (bæði er átt við brennu og bruna).
Andlát voru 62 (þarna koma tilvik, þegar til krufningar þarf að
koma).
Tollabrot voru alls 11.
Ýmis konar brot, sem ekki eru nánar sundurliðuð, voru 121 talsins.
Kærur berast með ýmsum hætti, og eru þær bornar fram bæði
munnlega og skriflega. Það mun hins vegar mjög misjafnt, hversu
ítarlegur rökstuðningur er eða hver gögn fylgja. Þórir Oddsson vara-
i-annsóknarlögreglustjóri lagði á það áherslu, að nú væru gerðar rík-
ari kröfur til rökstuðnings og gagna. Þær kærur hlytu og greiðari af-
greiðslu, er kærandi léti rækilegar upplýsingar fylgja með.
Lögfræðingar meta þann kærustuðning, sem fylgir.
Mörg mál berast rannsóknarlögreglu ríkisins á þann hátt að lög-
regla í viðkomandi umdæmum tilkynnir um atburði. Lögreglunni ber,
samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 253/1977 um samvinnu og starfs-
skiptingu lögreglustjóra og rannsóknarlögreglustjóra, að gera þær að-
gerðir í þágu rannsóknar, sem ekki má fresta. Er ástæða til að leggja
áherslu á mikilvægi þessa ákvæðis um tilkynningar og frumaðgerðir
lögreglu.
Sú spurning vaknar ósjálfrátt, hvort almenningur eigi auðveldara
með að koma kærum sínum á framfæri eftir tilkomu rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Rannsóknarlögreglustjóri og vararannsóknarlögreglu-
stjóri voru inntir eftir þessu, en þeir töldu því ekki auðsvarað. Einn
kostur væri þó augljóslega samfara því, að rannsóknarlögreglan væri
nú undir einu þaki. Almenningur þyrfti ekki lengur að vera í vafa,
hvert beina ætti kærum. Með tilkomu rannsóknarlögreglu ríkisins væri
komin eins konar miðstöð, sem gæti tekið slíkar kærur til meðferðar.
RÉTTARFAR INNAN OG UTAN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Ein helsta gagnrýnin, sem kom fram varðandi hugmyndir um rann-
sóknarlögreglu ríkisins, var sú, að mismunandi réttarfar myndi ríkja
á hinum ýmsu stöðum.
148