Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Page 61
4. Hrd. XXIII bls. 194: Óeirðir við Alþingishúsið í Reykjavík 30. mars 1949.
5. Hrd. XLIII bls. 293: Fjölmennur hópur fólks rauf stíflumannvirki í Laxá í S.-
Þingeyjarsýslu 25. ágúst 1970.
Ennfremur þykir rétt að nefna tvö mál í héraði. Með tveimur áka&rum út-
gefnum 10. janúar 1978 er opinbert mál höfðað á hendur stjórnarmön.num og
framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra rafverktaka svo og á hendur
stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra Sambands málm- og skipasmilSja fyrir
að hlíta ekki verðákvörðunum verðlagsyfirvalda heldur gefa út annan hærri
verðtaxta og tilkynna félagsmönnum til að fara eftir. Mál þessi eru nú rekin
fyrir verðlagsdómi Reykjavíkur.
III) Minniháttar afbrot útlendinga.
Þetta umræðuefni var á dagskrá samkvæmt ósk danska ríkissaksóknarans
enda er málið mjög raunhæft í Danmörku þvi að tugir milljóna útlendinga
koma þangað og fara þaðan á ári hverju. Fer ekki hjá því að margir þeirra
lendi í einhverjum lagabrotum og eru brot gegn umferðarlögum alpengust.
Ræðumenn voru sammála um að meiriháttar afbrot hljóti að sæta sömu
meðferð hvort sem útlendingur eða innlendur maður eigi hlut að máli. Þessi
grunnregla eigi einnig við um minniháttar brot nema alveg sérstaklega standi
á. Leggja beri áherslu á að Ijúka sem flestum málum útlendinga áður en þeir
fara úr landi.
island hefur hér nokkra sérstöðu. Landið er eyja í fjarlægð frá meginlönd-
um og umferð og umferðarbrot erlendra ökumanna hverfandi. Hér er heldur
ekki fyrir hendi vandi margra Evrópuríkja, sem leiðir af fjölmennu erlendu
verkafólki. Fullyrða má að erlendir brotamenn sæti hér á landi sömu reglum
og innlendir.
IV) Tíðni og breyting afbrota.
Á fundum ríkissaksóknaranna eru lagðar fram nýjar skýrslur um afbrot í
ríkjum Norðurlanda. Að islandi undanteknu eru í hverju landi gefnar út árlega
ítarlegar afbrotaskýrslur, þar sem fram kemur meðai margs annars fjöldi til-
kynntra og upplýstra afbrota, fjöldi ákærðra manna og ákæruefni, fjöldi dóma,
niðurstöður þeirra og fullnusta, svo að nokkuð sé nefnt. Upplýsingar uin þessi
efni eru af mjög skornum skammti hér á landi.
Greinarhöfundur hefur samið yfirlit yfir fjölda ákærðra manna hér á landi
á árunum 1974—1977 og aðalákæruefni á hendur þeim. Yfirlitið var lagt fram
á fundinum og er það þannig:
AÐALÁKÆRUEFNI
A) Almenn hegningarlög:
Brot gegn valdstjórninni .................
Brot á almannafriði og allsherjarreglu .
Brot í opinberu starfi ...................
Rangur framburður og rangar sakargiftir
Skjalafals ...............................
Eldsvoði af ásetningi ....................
173. gr. a um ávana- og fíkniefni ........
Skírlífisbrot ............................
Fjöldi ákærðra:
1974 1975 1976 1977
8 3 8 9
1
1 3 11
2 3 1
46 86 89 100
7
1 5
4 3 2 19
155