Tímarit lögfræðinga - 01.11.1978, Page 67
M
Lögfræöingafélagl
Islands
FÉLAGSFUNDIR
Hér fer á eftir stutt yfirlit yfir félagsfundi, sem hafa verið haldnir í Lögfræð-
ingafélagi íslands á þessu ári.
UPPLÝSINGAHEIMILDIR OG ÞAGNARSKYLDA
SKATTYFIRVALDA
Garðar Valdimarsson skattrannsóknarstjóri flutti erindi um ofangreint efni
á fundi þann 5. apríl 1978. Fundurinn var haldinn í Lögbergi og var vel sóttur.
Urðu allmiklar almennar umræður um fundarefnið að erindi Garðars loknu.
FRUMVARP TIL LAGA
UM TEKJUSKATT OG EIGNARSKATT
Þann 3. maí 1978 var haldinn almennur félagsfundur í Lögfræðingafélagi
islands, og flutti Árni Kolbeinsson deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu erindi um
frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt, en frumvarp þetta var þá til
meðferðar á Alþingi.
Fundinn, sem haldinn var í Lögbergi, sóttu um 30 lögfræðingar og tóku
margir til máls við almennar umræður um fundarefnið.
VINNULÖGGJÖF — VERKFÖLL
Laugardaginn 30. september 1978 hélt Lögfræðingafélag islands málþing
um efnið „Vinnulöggjöf — verkföll" í félagsheimilinu Fólkvangi á Kjalarnesi.
Eftir að þátttakendur höfðu gætt sér á morgunkaffi, setti formaður félagsins
málþingið og skipaði Skúla J. Pálmason hrl. umræðustjóra.
Fyrst var fjallað um, hverjar séu heimildir og hverjar takmarkanir á heimild-
um verkfallsaðila til réttarvörslu í löglega boðuðum verkföllum. Höfðu þeir
framsögu prófessor Sigurður Líndal og Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl.
Ræður frummælendanna snerust einkum um, hverjir mættu vinna og hverjir
ekki störf þeirra starfsmanna, sem eiga í löglega boðuðu verkfalli, en 18. gr.
I. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur fjailar að nokkru um þetta atriði.
Við almennar umræður um þetta efni tóku til máls þeir Már Pétursson hér-
aðsdómari, Magnús Thoroddsen borgardómari, Páll S. Pálsson hrl., Jón Sig-
161