Tímarit lögfræðinga - 01.12.1990, Síða 7
Jóhannes L.L. Helgason hrl
Jóhannes L.L. Helgason
IN MEMORIAM
Hvarvetna þess er ég heyri skarpgreinds manns getið kemur nafn Jóhannesar
L.L. Helgasonar í hugann. Hann var um margt sérstæður maður, skar sig úr
fjöldanum, gjörvulegur og garpslegur, geðríkur og gáfaður, hnyttinn í orðræð-
um, fyndinn og frjór í hugsun. Hann minnti mig oft á ólman fola sakir fjörs og
ólgu í sálu og sinni. Persónuleiki Jóhannesar vakti með mönnum virðing á
honum. Réði þar um bæði útlit og gáfur. Hann færði mikla persónu, eins og sagt
er.
I minni mínu er greypt skýr mynd af því er ég fyrst leit Jóhannes augum. Það
mun hafa verið árið 1962 að hann sem nýbakaður lögfræðingur hóf störf hjá
Vátryggingafélaginu hf., sem var til húsa á Klapparstíg 26 hér í borg, en í þessu
sama húsi rak ég lögmannsstofu. Vakti hann athygli niína, er ég mætti honum í
stigahúsinu, því að hann fór alla jafna mikinn, tók þrjár ef ekki fjórar tröppur í
einu stökki, slíkur var starfsviljinn, vinnugleðin og ákefðin. Höfðu þeir hjá
Vátryggingafélaginu hf. aldrei kynnst öðrum eins afkastamanni og Jóhannesi,
þótti þeim hann eigi einhamur og var það að vonum. Þannig var hann alla tíð,
vaskur og röskur til allra starfa, vildi láta hlutina ganga og var lítt í rónni fyrr en
hann hafði lokið verkinu. Þetta er aðal athafnamanna, enda hafði ég á stundum
orð á því við hann að ég hefði kosið að sjá hann stjórna stórfyrirtæki, þar hefðu
þessar eigindir hans notið sín vel, en ég held að það hafi mátt einu gilda hvar
hann hefði haslað sér starfsvöll, hann hefði leyst öll sín störf af hendi með stakri
prýði, slíkir voru hæfileikar hans.
Jóhannes Lárus Lynge Helgason fæddist 20. október 1937 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Dagmar Árnadóttir og Helgi Jóhannesson loftskeytamað-
ur. Hann bar nafn föðurafa síns, séra Jóhannesar Lárusar Lynge Jóhannssonar á
Kvennabrekku í Dölum vestur. Föðurætt Jóhannesar er kunn af gáfum, á innan
sinna vébanda mikla námsgarpa, raunvísindamenn sem hugvísindamenn, svo og
listamenn, einkum skáldmælta. Jóhannes fór ekki varhluta af þessum eigindum
133