Tímarit lögfræðinga - 01.12.1990, Page 26
Evrópska einkaleyfisskrifstofan, EPO (European Patent Office), sem veitir
einkaleyfi samkvæmt evrópska einkaleyfissáttmálanum, gefur út leiðbeiningar
til notkunar við mat sem fram fer innan stofnunarinnar á því hvort veita skuli
einkaleyfi fyrir uppfinningu. Eins og leiðbeiningarnar eru orðaðar eftir breyt-
ingar á þeim sem gerðar voru árið 1985 skal meta tæknilegt eðli uppgötvunar í
heild.1' Á grundvelli þessara leiðbeininga veitti skrifstofan einkaleyfi fyrir
tiltekinni aðferð og búnaði við meðhöndlun ljósmynda. Við meðhöndlunina var
beitt tölvutækni, en ekki var verið að krefjast einkaleyfis fyrir hugbúnaðinum
sem slíkum!0 Ekki verður hér gerð grein fyrir dómaframkvæmd í einstökum
löndum varðandi veitingu einkaleyfa á þessu sviði. í greinargerð með framan-
greindu frumvarpi til laga um einkaleyfi kemur fram að þar sem stýriforrit feli í
sér tæknilega eiginleika geti þau verið einkaleyfishæf að öðrum skilyrðum
uppfylltum!1
3.2 Sérhönnuð vernd
Alþjóðlega hugverkastofnunin, WIPO (World Intellectual Property Organ-
ization), fullgerði árið 1977 sérstakar reglur um hugbúnað!2 Hugmyndin var að
reglurnar yrðu fyrirmynd að löggjöf einstakra ríkja. Sú vernd sem fólst í þessum
hugmyndum var að mestu höfundaréttarlegs eðlis en hafði einnig að nokkru
einkenni einkaleyfisverndar. Reyndin hefur orðið sú að þessar reglur hafa ekki
verið lögfestar af ríkjunum og alþjóðasáttmáli byggður á þeim hefur ekki heldur
verið undirritaður.
3.3 Höfundaréttur
1. mgr. 1. gr. höfundalaga 72/1973 veitir höfundi bókmenntaverka og
listaverka tiltekin réttindi sem talin eru upp í 3. gr. laganna. í 2. mgr. 1. gr. er
talið upp hvað teljist til bókmennta- og listaverka, en sú upptalning er ekki
tæmandi. Hugbúnaður er hvergi nefndur á nafn í lögunum.
Snemma kom fram sú skoðun hjá fræðimönnum13 að hugbúnaður sem slíkur
uppfylli skilyrði þess að njóta höfundaréttarverndar. Dómaframkvæmd í fjöl-
mörgum löndum hefur staðfest slíka vernd án þess að hugbúnaður væri
sérstaklega nefndur á nafn í lögum þessara ríkja. Jafnframt hafa ríki hvert af
öðru verið að breyta höfundalögum sínum með tilliti til hugbúnaðar. Hefur þá í
upptalningu verndaðra verka í lögunum verið bætt við heitinu hugbúnaður
9. Official Journal EPO 1985, bls. 175.
10. Entscheidung der Technischen Beschwerdekammer 3.5.1. des Europáischen Patentamts vom
15.7.1986, birt í GRUR Int. 1987, bls. 173.
11. Frumvarp til laga um einkaleyfi, 112. löggjafarþing 1989- 1990, þingskjal 578, bls. 30- 31.
12. Birtar í GRUR lnt. 1978, bls. 286.
13. Sjá Ulmer og Kolle, bls. 162 - 163 og þar tilvitnuð rit.
152