Tímarit lögfræðinga - 01.12.1990, Side 61
Þorgeir Örlygsson
Ritstörf:
Um viðurkenningu erlendra dóma á íslandi. Tímarit lögfræðinga 38 (1988),
bls. 21-47.
Fyrirlestrar:
Um réttarstöðu afurðastöðva í landbúnaði. Fluttur á haustfundi Félags
sláturleyfishafa 17. nóvember 1988.
Rannsóknir:
Auk áðurgreindra efna var unnið að eftirtöldum verkefnum:
íslenskar lagaskilareglur á sviði sifjaréttar. Handrit. Ætlað til birtingar á árinu
1989.
Um þinglýsingu kaupsamnings í fasteignakaupum. Handrit. Ætlað til birting-
ar á árinu 1989.
Réttarreglur, er varða mistök við þinglýsingu og um
afleiðingar slíkra mistaka. Handrit. Ætlað til birtingar á árinu 1989.
Um mynsturvernd. Handrit. Ætlað til birtingar á árinu 1989. Framhald
fyrri rannsókna.
Dómaskrá um þinglýsingar. Reifanir dóma, er varðaskýringu þinglýsingalaga
nr. 39/1978. Handrit.
Ensk - íslensk lögfræðiheiti. Þýðing og staðfæring enskra lögfræðiheita á
íslensku. Handrit yfir bókstafina A - C.
Frumvarptil laga um einkaleyfi. Unnið ásamt Jóni L. Arnalds, borgardómara
og Gunnari Erni Harðarsyni, tæknifræðingi, að athugun á því, hvort þörf væri á
setningu nýrra einkaleyfalaga á íslandi. í framhaldi af því unnið ásamt sömu
mönnum að samningu frumvarps til nýrra einkaleyfalaga, sem ætlunin er að
leggja fram á vorþingi 1989.
Frumvarp til laga um skráningu og meðferð persónuupplýsinga. Samdi ásamt
Tryggva Gunnarssyni, lögfræðingi, frumvarp til laga um ofangreint efni, en
frumvarp þetta hefur verið Iagt fram á Alþingi.
Frumvarp til laga um friðun hreindýra. Samdi ásamt Friðgeiri Björnssyni,
yfirborgardómara, frumvarp til laga um ofangreint efni, en frumvarp þetta hefur
verið lagt fram á Alþingi.
187