Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 50

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 50
í samsvarandi máli BP (TfS 1988.292 H) var félagið sýknað í Hæstarétti. Þar var ekki einungis um að ræða leiðréttingu með hliðsjón af brúttóálagningu heldur var einnig um að ræða að BP í Danmörku keypti af samstæðufélögum BP á verði sem var hærra en heimsmarkaðsverð á olímarkaðinum í Rotterdam. BP taldi á móti að samanburðurinn við Rotterdamverð ætti ekki við og að hækkun skattyfirvalda væri ómálefnaleg og færi fram úr sanngjömu mati. I Eystra Landsrétti kom rétturinn til móts við sjónarmið ríkissjóðs með því að fallast á að 25% af innkaupum BP hjá móðurfélaginu væri á verði sem væri 9,4% hærra en samsvarandi verð á Rotter- dammarkaði. Meiri hluti Hæstaréttar (4:3) féllst hins vegar á sýknukröfu BP. Lagði hann til grundvallar að álagning BP hefði verið viðunandi og verðin í langtíma- samningum um skipsfarma hefði verið ýmist undir eða yfir Rotterdamverði. Meiri hluti Hæstaréttar taldi, með vísan til þessa og á grundvelli þess að skattyfirvöld höfðu ekki ýtt til hliðar svipuðum kjörum hjá öðrum olíufélögum, að skilyrði leiðréttingar skattyfirvalda samkvæmt lögum væru ekki uppfyllt. Dómur Hæstaréttar frá 1997 (TfS 1997.392 H) er athyglisverður, sérstaklega vegna þess hvemig málið tekur breytingum í meðförum dómstóla. Um var að ræða danskt framleiðslufélag. Það var í eigu dansks móðurfélags sem var í eigu erlendis búsetts hluthafa og fjölskyldu hans í Danmörku. Félagið hafði með höndum framleiðslu háþróaðra vélahluta, sem aðallega voru seldir gegnum móður- félagið. Hluti sölunnar, aðallega til viðskiptavina í Hollandi og Þýskalandi, fór í gegnum tengt félag í Liechtenstein með þeim hætti að reikningur var gefin út af framleiðslufélaginu í Danmörku til félagins í Liechtenstein sem gaf út reikning áfram til viðskiptavinarins. Afhending vörunnar sjálfrar fór þó fram beint frá framleiðand- anum í Danmörku til viðskiptavinarins í útlöndum. Verðið samkvæmt reikningnum frá Danmörku til félagsins í Liechtenstein var u.þ.b 50% af vörureikningunum til samsvarandi viðskiptamanna í Damörku. Bæði skattyfirvöld og Landsskattarétturinn komust að þeirri niðurstöðu að um væri að ræða millireikningsútgáfu til svokallaðs „póstkassafélags“.63 Skattaleg leiðrétting var því framkvæmd þannig að tekjur danska félagsins vegna sölu til Liechtenstein voru hækkaðar um þá fjárhæð sem þær töldust lægri en verið hefði af sölu til danskra viðskiptamanna. Bæði í Vestra Landsrétti og Hæstarétti var sjónarmiðum skattyfirvalda um tekjuhækkanir hjá danska félaginu vegna meintrar tilbúinnar tekjuyfirfærslu til félagsins í Liechtenstein hafnað. Málið breyttist við meðferð dómstólanna úr skattasniðgöngumáli í milliverð- lagningarmál. Samkvæmt því var spumingin sú hvort salan til tengda félagsins í Liechtenstein á 50% lægra verði en til viðskiptavina á Norðurlöndum stæðist arms- lengdarsjónarmið. A það var fallist fyrir báðum dómstigum. Meiri hluti Hæstaréttar vísaði til þess að reikningsverðið til félagsins í Liechtenstein væri ekki frábmgðið því verði sem notað væri til annarra ótengdra, erlendra milliliðafyrirtækja. A þeim 63 Sjá Intemational Tax Glossary, 1996, bls. 183, Letter-Box Company: „A paper company, shell company or money box company, i.e a company which has complied only with the bare essentials for organization (e.g. filing articles of incorporation) and registration in a particular country. The company essentially only exists on paper, as it has no office, business assets, managing directors or employees in the country of organization, but only an address of a person (often a bank or attomey) to whom letters can be addressed. The actual commercial activities are carried out in another country....“. 118
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.