Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 51

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Page 51
grundvelli þótti ekki vera stætt á því að halda því fram að um tekjuyfirfærslu hefði verið að ræða til tengds fyrirtækis. Eins og áður segir verða ekki fundin dæmi þess í danskri dómaframkvæmd að dómstólar hafi staðfest hækkanir skattyfirvalda í milliverðlagningarmálum. Athyglisvert er að skoða tvo eftirfarandi úrskurði Landsskattaréttarins. TfS 1988.524 LSR. í málinu var um að ræða danskt hlutafélag og samskattað danskt dótturfélag þess sem sá um framleiðslu undir yfirráðum svissnesks félags, sem hafði keypt hlutaféð í móðurfélaginu samtímis því sem það keypti einkaleyfi og einka- söluleyfi í einkaeign fyrrverandi aðalhluthafa danska móðurfélagsins. Framleiðsla danska dótturfélagsins var flutt yfir til svissneska félagsins til takmarkaðrar viðbótar- vinnslu og endursölu til ótengdra viðskiptavina. Skattyfirvöld hækkuðu sölutekjur danska félagsins vegna sölunnar til svissneska félagsins með vísan til 12. greinar félagaskattalaganna. Hækkunin byggðist á endursöluaðferðinni (the resale price method, sbr. hér að framan) þar sem sýnt var fram á að svissneska félagið seldi framleiðsluna til þriðja aðila á 6,30 kílóið, enda þótt það hefði keypt vöruna frá danska félaginu á 1,20 kílóið. Danska félagið mótmælti m.a. með vísan til þess að danska félagið framkvæmdi einungis launavinnuþátt framleiðslunnar, þar sem einka- leyfið og einkasöluleyfið hefði verið yfirfært til svissneska félagsins. Skattyfirvöld rökstuddu kröfur sínar aðallega með því að benda á að brúttóálagning danska félags- ins hefði fallið mikið við framsal einkaleyfisins og einkasölunnar til Sviss. Lands- skattarétturinn féllst á það að skilyrði þágildandi 12. gr. félagaskattalaganna hefðu verið uppfyllt, en treysti sér hins vegar ekki til að staðfesta þær hækkanir sem skattyfírvöld höfðu framkvæmt. Síðari úrskurðurinn er ekki eins skýrt dæmi um beitingu armslengdar- reglunnar, en er athyglisverður, sérstaklega með hliðsjón af íslenskri fram- kvæmd. Tfs 1986.146 LSR. í málinu hafði danskt félag þróað nýja vöm sem seld var frá félaginu. Framleiðslu- og sölumál félagsins voru endurskipulögð eftir nokkur ár, þannig að danska félagið hafði eftir það einungis með höndum framleiðslu hálf- unninnar vöra sem var seld nýstofnuðu, svissnesku systurfélagi. Endanleg fram- leiðsla og sala fór síðan fram hjá félaginu í Sviss. Reikningsverð vörannar til Sviss var miðað við kostnaðarverð að viðbættri 25% álagningu. Álagning svissneska fé- lagsins nam hins vegar 125% miðað við upphaflegt kostnaðarverð. Landsskattarétt- urinn áleit að of stór hluti af fyrirtækinu hefði verið dreginn út úr danska félaginu og að það félag hefði flutt hlutfallslega allt of stóran hluta teknanna til svissneska fé- lagsins með rangri álagningarskiptingu milli hinna tengdu félaga. Landsskatta- rétturinn komst síðan að þeirri niðurstöðu að hinar yfirfærðu tekjur skyldu færðar til baka til félagsins í Danmörku, með vísan til 4. gr. tekjuskattslaganna. (Samsvarar 7. grein íslensku tskl.). Landsskattarétturinn vísaði þannig ekki til 12. gr. dönsku félagaskattalaganna, e.t.v. vegna þess að málið snérist um danskt félag sem ekki var undir yfirráðum erlends móðurfélags. Hefðbundum milliverðsreglum var því ekki 119
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.