Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Side 79

Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Side 79
gangi hans. Dómurinn byggir á því að íslensk lagaákvæði um réttinn til greiðslu launa við gjaldþrot væru alveg skýr um það tilvik sem málið fjallaði. Rétturinn væri ekki til staðar. Samt er stefnanda málsins dæmdur þessi réttur. Af dóm- inum hlýtur að verða ráðið að lög sem Alþingi setti á morgun, með nákvæmlega sama efni og áður, myndu ekki ráða réttarstöðu manna. Hún myndi ráðast sem fyrr af evrópureglunni. Ennfremur hlýtur þessi niðurstaða að fela það í sér að íslenska ríkið yrði skaðabótaskylt að landsrétti ef réttur manna til ríkisábyrgðar á launum við gjaldþrot yrði aukinn á vettvangi Evrópska efnahagssvæðisins án þess að sambærileg regla yrði lögfest hér á landi. f aðferðafræði dómsins felst að íslenski löggjafinn, Alþingi, hafi við setningu laga nr. 2/1993 ákveðið á bindandi hátt að hendur þess sama löggjafa skyldu í framtíðinni verða bundnar með þeim hætti að ekki megi setja lög í landinu í andstöðu við tilskipanir efna- hagssvæðisins. Ég fæ ekki betur séð en þessi niðurstaða hljóti að teljast fjar- stæðukennd. Löggjafinn getur ekki bundið hendur sjálfs sín um lagasetningu framtíðarinnar. Með því eru þeir þingmenn sem nú sitja að takmarka meðferð lagasetningarvalds í hendi þeirra sem á eftir þeim koma. Til þess hafa þeir ekkert vald. Það er eins augljóst og hugsast getur að í dóminum felst að lög- gjafarvaldið teljist hafa verið framselt til stofnana hins Evrópska efnahags- svæðis þegar ísland gerðist aðili að því. Þessi raunverulega niðurstaða dómsins verður ekki réttlætt með einhverjum orðum í forsendum hans um að löggjafar- vald hafi ekki verið framselt. Þau orð virðast aðeins vera einhvers konar tilraun til að fela hina raunverulegu niðurstöðu sem felst í þessum dómi. I raun og veru felur dómurinn í sér fráhvarf frá hefðbundnum aðferðum við meðferð réttar- heimilda án þess að nokkur viðhlítandi skýring sé gefin á forsendum fyrir því háttalagi. Meðan svo stendur kalla ég þetta lausung í lagaframkvæmd. 3.3 Glaðbeittar skýringar á jafnræðisreglu í þriðja lagi nefni ég það hér til sögunnar að í íslenskri lögfræði, og raunar í almennum umræðum um þjóðmál undanfarið, hafa sést mjög glaðbeittar skýr- ingar á jafnræðisreglu 65. gr. stjórnarskrárinnar. Eins og kunnugt er kom þetta ákvæði nýtt inn í stjómarskrána með 3. gr. stjómskipunarlaga nr. 97/1995, þó að ljóst hafi verið að viðlíka ólögfest regla hafi fram að því verið talin ein helsta undirstaðan í íslenskri stjómskipan, eins og komist var að orði í athugasemdum með frumvarpinu að stjómskipunarlögunum 1995. Svo er að sjá sem einhverjir telji að með þessu ákvæði hafi verið lögleidd einhvers konar jafnaðarstefna sem banni að réttur manna til lífsgæða, sem lög fjalli um, megi vera misjafn. Þetta er auðvitað fráleitt sjónarmið. Með lögum er sífellt verið að mismuna mönnum. Reglur laga um almannatryggingar kveða t.d. á um að sumir menn skuli eiga rétt á fjárframlögum samkvæmt lögunum en aðrir ekki. Þetta stenst auðvitað ef réttur manna til slíkra framlaga er byggður á málefnalegum forsendum og allir sem eins stendur á um í því málefni, sem um ræðir, eru látnir njóta sama réttar. Fjölmörg lagaákvæði önnur mætti nefna sem sama marki eru brennd. í jafn- ræðisreglunni getur ekki falist annað og meira en að mismunandi réttarstaða 147
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.