Tímarit lögfræðinga - 01.09.2000, Síða 94
„Viðfangsefni tölvunefndar á nýrri öld“. Fluttur 21. október 1998 á málstofu
í Samvinnuháskólanum að Bifröst.
„Ný lög um lausafjárkaup“. Fluttur 26. janúar 1999 á hádegisverðarfundi í
Lögfræðingafélagi Islands í Kornhlöðunni.
Rannsóknir:
Unnið áfram að samningu kennslubókar, sem ber heitið Þinglýsingalögin -
Skýringar.
Unnið áfram að santningu kennslubókar á sviði almenna hluta kröfuréttarins.
Unnið að samningu tveggja rita á sviði veðréttar. Annars vegar er almennt
kennslurit, sem fjallar um meginefni nýrra laga um samningsveðsetningar nr.
75/1997 og hins vegar skýringarrit um sömu lög. (kommentar).
4. STARFSEMI GERÐARDÓMS OG RÁÐGJAFARÞJÓNUSTU
Á tímabilinu frá 28. febrúar 1998 til 27. febrúar 1999 bárust verkefnanefnd
5 beiðnir um verkefni, en ein barst á sama tímabili 1997 - 1998. Tvær voru
afgreiddar og er þeirra getið hér að framan. Tvær eru óafgreiddar og ein var
afturkölluð.
Fyrir liggur flokkuð skrá yfir álitsgerðir og gerðardóma sem Lagastofnun
hefur staðið að. Er hún varðveitt í skrifstofu lagadeildar. Formaður verkefna-
nefndar er Þorgeir Örlygsson prófessor. Aðrir í nefndinni eru Stefán Már Stef-
ánsson og Sigurður Líndal.
5. ENDURMENNTUN LÖGFRÆÐINGA
Þann 5. desember 1997 var undirritaður samningur milli Lagastofnunar f.h.
lagadeildar Háskóla íslands annars vegar og Lögmannafélags Islands, Lögfræð-
ingafélags Islands og Dómarafélags Islands hins vegar um endurmenntun
lögfræðinga. I samningnum er gert ráð fyrir að lögfræðingum verði með nánar
tilgreindum takmörkunum heimilað að sitja í kennslustundum og önnur þátttaka
í kjörgreinanámi til jafns við stúdenta og ganga undir próf ef þeir vilja. Þeir
skulu eiga þess kost að fá skriflega staðfestingu lagadeildar á því að þeir hafi
stundað nám í kjörgreininni og hlotið tiltekna einkunn ef þeir hafa gengizt undir
próf. Lagastofnun kynnir félögunum hvaða kjörgreinar séu í boði, en félögin
annast kynningu meðal félagsmanna og skráningu þeirra sem áhuga sýna, og
tilkynna það skrifstofu lagadeildar. Þá er gert ráð fyrir samstarfsnefnd til að
fylgjast með framkvæmd samningsins. Skal hún skipuð tveimur sem Laga-
stofnun tilnefnir, tveimur sem félögin tilnefna og einum sem Orator, félag laga-
nema, tilnefnir. Nefndin hefur verið skipuð og sitja í henni Sigurður Líndal
prófessor, Kolbrún Linda Isleifsdóttir kennslustjóri, tilnefnd af Lagastofnun,
Helgi Jónsson héraðsdómari, tilnefndur af Dómarafélagi Islands og Lögfræð-
ingafélagi Islands, Sigurbjöm Magnússon hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af
Lögmannafélagi íslands og Ólafur Jóhannes Einarsson laganemi, tilnefndur af
162