Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 10

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 10
txúa, eins og henni er nú fyrir komið, uppfylli ekki grunnreglur stjórnarskrár um sjálfstæði dómsvaldsins, svo sem þær verða skýrðar með hliðsjón af 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um sjálfstæða og óvilhalla dómara, til þess að þeir geti í eigin nafni og á eigin ábyrgð farið með þau dómstörf sem lýst er í bréfi dómsmála- ráðuneytisins hér að framan". í minnihlutaatkvæði eins dómara kemur fram að hann telur ekki ástæðu til að ætla að staða dómarafulltrúanna uppfyllti ekki skilyrði stjómarskrár og mann- réttindasáttmálans. Það væri í verkahring framkvæmdarvalds og löggjafarvalds að lagfæra fyrirkomulagið væri þess þörf. Hæstiréttur Danmerkur hafði fengið hliðstætt sakarefni til úrlausnar og var niðurstaða hans á svipaða lund og í minnihlutaatkvæðinu íslenska. Hér lét Hæstiréttur skammt stórra högga á milli í lögskýringum sínum. Þegar lögin um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, tóku gildi blasti nýr vandi við þeim sem fást við lögskýringar. Sá vandi er m.a. í því fólginn að sam- kvæmt lögunum skal skýra lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til sam- ræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja. Ennfremur ber við framkvæmd og beitingu ákvæða samningsins að túlka þau í samræmi við úrskurði dómstóls Evrópubandalaganna sem máli skipta og kveðnir hafa verið upp fyrir undirritunardag samningsins. Hér er komið inn á nýtt svið og lögskýr- ingar eru orðnar lögbundnar að töluverðu leyti. Ekki nóg með það heldur getur verið vafa undirorpið hvað af því kraðaki sem samningurinn dregur á eftir sér eru réttarheimildir að íslenskum lögum eða lögskýringagögn. Hér er sprottinn upp frumskógur sem erfitt er að rata um og auðvelt að villast í. Það er helst að harðsvíraðir fræðimenn nái á því einhverjum tökum sem sýnast þó misjafnlega sannfærandi. Hvað gerist svo þegar heimildarnar taka að stangast á? I leiðara í 1. hefti síðasta árgangs þessa tímarits var farið nokkrum orðum um þennan vanda og dóm Hæstaréttar Noregs í máli tryggingafélagsins Storebrand gegn Veroniku Finanger. Tryggingafélagið hafði neitað Veroniku um bætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í bílslysi sem farþegi með ölvuðum öku- manni. Samkvæmt norskum lögum átti hún ekki rétt á bótum en EFTA-dóm- stóllinn taldi í ráðgefandi áliti sínu að þau lög stönguðust á við þrjár tilskipanir Evrópusambandsins um bifreiðatryggingar. Hæstiréttur Noregs komst að þeirri niðurstöðu, eins og EFTA-dómstóllinn, að norska lagaákvæðið og tilskipanir Evrópusambandsins stönguðust á. Meirihlutinn taldi ekki unnt að skýra norska lagaákvæðið í samræmi við tilskipanirnar, lagaákvæðið gengi framar og sýknaði tryggingafélagið. Minnihlutinn taldi hins vegar unnt að skýra norska lagaákvæðið í samræmi við tilskipanirnar og taldi að Vernoika ætti rétt á bótum. Ekki verður betur séð en í raun sé niðurstaða minnihlutans sú að láta tilskipan- irnar ráða og víkja norska ákvæðinu til hliðar þótt aðferðin við það sé sú að beita lögskýringu. I framangreindum leiðara er þess getið að í Héraðsdómi Reykjavíkur hafi gengið dómur í máli þar sem sakarefni var svipað og í máli Veroniku Finanger. I því máli var vikið til hliðar áratuga gamalli íslenskri dómvenju um að sá sem 4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.