Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Blaðsíða 91
Fundur Evrópusamtaka dómara var haldinn 19. og 20. mars 1999 í borginni
Villeneuve lés Avignon í Frakklandi. Sótti formaður fundinn.
Fundur formanna og varaformanna norrænu dómarafélaganna var haldinn í
Kaupmannahöfn 21. og 22. maí 1999. Formaður sótti fundinn. Þá sótti formað-
ur aðalfund danska dómarafélagsins sem haldinn var í Nyborg á Fjóni 12. og
13. nóvember 1999.
Félagið skilaði m.a. umsögnum um frumvarp til breytinga á lögum nr.
19/1991 um meðferð opinberra mála og frumvarp til breytinga á lögum um
fangelsi og fangavist. Þá kom félagið á framfæri við sifjalaganefnd ábendingum
vegna endurskoðunar bamalaga nr. 20/1992.
4. Starfsárið 1999-2000
Aðalfundur Dómarafélags íslands árið 1999 var haldinn á Grand Hótel,
Reykjavík, 25. nóvember 1999.
Hvorki formaður, Garðar Gíslason hæstaréttardómari, né gjaldkeri, Þorgeir
Ingi Njálsson héraðsdómari, gáfu kost á sér til endurkjörs. Var Helgi I. Jónsson
héraðsdómari kjörinn formaður félagsins og aðrir í stjóm voru kjörin Eggert
Óskarsson héraðsdómari, varaformaður, Guðrún Erlendsdóttir hæstaréttardóm-
ari, meðstjómandi, Finnbogi H. Alexandersson héraðsdómari, gjaldkeri, og
Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari, ritari. Varastjórnarmenn voru kjörin Hjör-
dís Hákonardóttir héraðsdómari og Freyr Ófeigsson dómstjóri.
Sigurður Tómas Magnússon, formaður Dómstólaráðs, gerði grein fyrir störf-
um ráðsins þann tíma sem ráðið hefur starfað og varpaði fram spumingum um
það hver væri stjómsýsluleg staða ráðsins, hvað ráðið ætti að gera og hvað ekki
og hvað áunnist hefði frá 1. júlí 1998.
Dómsmálaþing var haldið eftir hádegi sama dag þar sem rætt var um skýrslu-
töku af bömum í sakamálum. Frummælendur vom Sigríður Ingvarsdóttir hér-
aðsdómari, Þorgeir Magnússon sálfræðingur og Bogi Nilsson ríkissaksóknari.
Þá var einnig fjallað um íslenskt réttarfar í ljósi Mannréttindasáttmála Evrópu.
Fmmmælendur vom Eiríkur Tómasson prófessor, Jakob R. Möller hrl., Tryggvi
Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og Þór Vilhjálmsson, dómari við EFTA-
dómstólinn. Á eftir vom pallborðsumræður um síðara efnið sem Gunnlaugur
Claessen hæstaréttardómari stjómaði og þátt tóku í áðumefndir frummælendur
og Bogi Nilsson ríkssaksóknari.
Árlegt jólahlaðborð félagsins með Lögfræðingafélagi íslands og Lögmanna-
félagi íslands var að venju haldið í Víkingasal Hótels Loftleiða fimmtudaginn
9. desember 1999. Þar flutti Einar Benediktsson sendiherra hugvekju um störf
sín sem sendiherra. Þá fræddi hann fundarmenn um störf sín sem framkvæmda-
stjóra landafundanefndar en í ár er þess minnst að 1000 ár em liðin frá því
íslendingar fundu Norður-Ameríku.
Dómarafélag íslands og Lögmannafélag Islands héldu sameiginlegan fund
10. febrúar 2000 um efnið: Hverjir verða dómarar framtíðarinnar? Var þar m.a.
fjallað um hvort nauðsynlegt sé að héraðsdómarar komi aðallega úr röðum
85