Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 32

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 32
Það er skilyrði svo að um pöntunarkaup sé að ræða að sá sem pantar hlut er búa skal til láti ekki í té verulegan hluta efnis til framleiðslunnar, sbr. 1. mgr. 2. gr. kpl. Sem dæmi má nefna það tilvik þegar maður pantar eldhúsinnréttingu. Ef smiðurinn leggur jafnframt til efnið í eldhúsinnréttinguna er um kaup að ræða. Ef sá sem pantar leggur jafnframt til efnið er hins vegar ekki um kaup að ræða heldur verksamning. í framkvæmd eiga pöntunarkaup helst við þegar um er að ræða einstaklingsbundna handverksframleiðslu eða verksmiðjufram- leiðslu, t.d. samninga um smíði skipa, byggingu flotbryggja og kaup á sérhönn- uðum vélum. Raðsmíðaðir hlutir geta einnig fallið hér undir. Pöntunarkaup geta einnig falist í efnasamruna og gróðurrækt. Sem dæmi má nefna þegar kaupandi pantar ákveðinn fjölda skrautblóma í garðyrkjustöð sem eiga að ná vissri stærð áður en þau eru afhent. I E mgr. 2. gr. kpl. kemur fram skilyrði um „verulegan hluta efnis“. Ef kaup- andinn lætur í té allt efnið eða verulegan hluta þess eiga ákvæði kpl. ekki við. Við skýringu hinna tilvitnuðu orða ber ekki aðeins að meta hina fjárhagslegu þýðingu viðkomandi hlutar heldur einnig hina notkunarlegu þýðingu hans. I 2. málsl. 1. mgr. 2. gr. er tekið fram að lögin gildi hvorki um samninga um að reisa byggingar né önnur mannvirki á fasteign. Þessi undantekning er ófrávíkjanleg og hún gildir án tillits til þess hver lætur í té efnið. Reglan er í samræmi við eldri rétt. Undantekningin gildir um allar gerðir bygginga eða annarra mannvirkja svo og framkvæmdir við byggingar og mannvirki sem eru varanlega skeytt við fasteignir. Samningar um framkvæmdir við fasteignir, svo sem að leggja flísar á gólf eða annað gólfefni, falla því utan laganna. Önnur mannvirkjagerð getur t.d. verið smíði brúar eða varanlegra mannvirkja í sjó. Jafnvel þótt slík mannvirki séu oft smíðuð að verulegu leyti á landi og síðan dregin á haf út falla samningar um þau utan ramma laganna. A hinn bóginn er ljóst að lögin taka til einstakra byggingarhluta sem skeyta á við mannvirkið, nema því aðeins að viðskeytingin teljist verulegur hluti af samningsskyldunni. Akvæði 2. mgr. 2. gr. er skylt E mgr. 2. gr. að því leyti að 2. mgr. skilgreinir hvenær ekki er um pöntunarkaup að ræða. Ef sá sem pantar hlut útvegar sjálfur efnið til hans verður sjálfur tilbúningur hlutarins aðalefnið í skyldu seljanda og kpl. eiga þá ekki við. Ákvæði 2. mgr. hefur í sjálfu sér ekki mikla sjálfstæða þýðingu heldur ber fremur að líta á það sem nánari útfærslu á 1. mgr. greinar- innar. Það getur þó haft sjálfstæða þýðingu ef vinnu- eða þjónustuskyldur seljanda eru ekki tengdar gerð hlutarins sem slíks, t.d. ef um er að ræða skyldur í tengslum við afhendingu hlutar eða skyldur eftir afhendingu. í 1. gr. laga nr. 42/2000 um þjónustukaup er gildissvið þeirra laga markað. Þar segir að lögin taki til hvers kyns samninga um kaup á þjónustu sem veitt sé neytendum í atvinnuskyni gegn endurgjaldi þegar veitt þjónusta felur í sér: E vinnu við lausafjármuni, 2. vinnu við fasteignir, vinnu vegna byggingaframkvæmda eða aðrar framkvæmdir á landi, 26
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.