Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 50

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 50
legra samfélaga, séu varin af stjórnarskrá og alþjóðlegum mannréttindasáttmál- um. I því og í meginreglunni um félagafrelsið felist að verkalýðsfélögin hafi fullt frelsi til allra ákvarðana um innri málefni sín og markmið, setji sér sjálf lög og túlki þau. Þar, eins og í öðrum frjálsum og lýðræðislegum félögum, lúti félagsmenn meirihlutaákvörðunum.9 Dómstólum sé ekki heimilt að endurskoða mat verkalýðsfélaganna á því hver markmið þeirra skuli vera svo fremi að þau raski ekki allsherjarreglu og ekki síður beri löggjafanum að virða mannrétt- indaákvæði stjórnarskrár og alþjóðlegra sáttmála þegar hann véli um þann ramma sem þeim og starfsemi þeirra er settur. Varpa má ljósi á þessa aðgrein- ingu aðal- og aukamarkmiða og þýðingu hennar með því að líta til nokkurra dóma, íslenskra og norrænna. 4.2 Dómaframkvæmd 4.2.1 Noregur í Noregi kom ágreiningur um kaup verkalýðsfélaga á hóptryggingum í þágu félagsmanna til kasta Hæstaréttar á árinu 1967.10 Málavextir voru þeir að á árinu 1964 samdi Alþýðusamband Noregs um samstarf við tryggingafélagið Samvirke um kaup á heimilishóptryggingum. Ákvörðun um að taka trygging- una var tekin af landssambandi nokkurra verkalýðsfélaga, Norsk Kjemisk Industriarbeiderforbund. Með meirihlutaákvörðun var samþykkt að tryggingin tæki til allra aðildarfélaga landssambandsins og félagsmanna þeirra, gamalla og nýrra. Ákveðið var jafnframt að félagsgjöld skyldu hækkuð lítillega til þess að standa straum af tryggingunni. Eitt aðildarfélaganna, Falconbridge Arbeider- forening, lagðist gegn tillögunni þegar í upphafi. Þrír félagsmenn þess félags höfðuðu mál á hendur landssambandinu og kröfðust ógildingar á ákvörðun þess þar sem það tilheyrði ekki markmiðum landssambandsins og verkalýðsfélag- anna að taka ákvarðanir um hvort og þá hvar félagsmenn keyptu tryggingar sínar. Þeir sögðu sig ekki úr verkalýðsfélaginu og færðu gild rök fyrir því að þeim bæri nauðsyn til að vera meðlimir en hækkun félagsgjaldanna og trygg- ingakaupin gætu neytt þá til úrsagnar. Meirihluti Hæstaréttar Noregs taldi heimilt að leggja dóm á það hver mark- mið verkalýðsfélagsins væru og einnig að skipta þeim markmiðum upp í aðal- og aukamarkmið. Hann taldi sér síðan heimilt að dæma um hvort hin tiltekna ákvörðun um heimilishóptryggingu samræmdist „aðalmarkmiðum“ sambands- ins og þá hvort heimilishóptryggingar tengdust nægilega stöðu félagsmanna 9 Sjá m.a. umfjöllun um þessi efni dr. Gunnar G. Schram: Stjómskipunarréttur. 2. útg., Háskóla- útgáfan, Reykjavík 1999, bls. 593; ETUI Research Group og Transnational Trade Union Rights - Final Report. European Trade Union Institute, Brussel 1998; Mrs. Ria Oomen-Rujten: Report on transnational trade union rights in the European Union - Committee on Employment and Social Affairs. 20. mars 1998 (A4-0095/98 - PE 223.118/fin.). 10 Norsk Retstidende 1967, bls. 1373. Norsk Kjemisk Industriarbeiderforbund gegn Theodor Hanisch, Finn Finne og Willy Helgesen. 44
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.