Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 57

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 57
Hugtakið fjárhagsleg starfsemi er skýrt þannig að átt er við „hvaða starfsemi sem er, hvort sem hún er rekin með hagnað í huga eða ekki, svo lengi sem hún felur í sér fjárhagsleg viðskipti“.31 I báðum þessum lögskýringum dómstólsins liggur áherslan ekki á því hvort um sé að ræða atvinnustarfsemi eða ekki heldur á því hvort starfsemin sé að einhveiju eða öllu leyti fjárhagsleg (efnahagsleg). Undir það fellur m.a. veiting þjónustu, miðlun þekkingar, trygginga og svo framvegis burt séð frá því hvort einhver hafi atvinnu eða framfæri sitt af slíkri starfsemi eða því hvort starfað er gegn endurgjaldi eins og áskilið er í 2. mgr. 4. gr. SKL. Með þessu erum við þó ekki miklu nær um samkeppnislega réttarstöðu verkalýðsfélaganna og íhlutunarrétt samkeppnisyfirvalda í starfsemi þeirra. Þessar skilgreiningar ED varða þó þá leið sem skilgreinir verkalýðsfélög, samtök þeirra og sjóði, almennt ekki sem fyrirtæki og undanþiggur þannig starfsemi þeirra frá ákvæðum SKL. Fjórir dómar ED, sem allir lúta að trygg- ingamálum, eru hér til leiðsagnar. Fyrri tveir dómamir eru frá árinu 1993, gjaman nefndir Poucet einu nafni.32 Þar var því slegið föstu að samtök sem höfðu á hendi stjórnun og umsjón með sérstöku skipulagi sjúkrabóta, fæðingarorlofs og ellilífeyris teldust ekki fyrirtæki í skilningi 81. gr. Rómarsamningsins (Rs), áður 85. gr.33 Skylduaðild 31 ED nr. C-41/83 Ítalía gegn framkvœmdastjóminni (British Telecommunications), REG 1985, bls. 873. í textanum hér að ofan hef ég þýtt eftirfarandi skilgreiningu dómstólsins á hugtakinu economic activity „any activity, whether or not proflt-making, that involves economic trade“. 32 ED nr. C-159/91 og C-160/91, Christian Poucet og Daniel Pistre gegn Assurance Générales de France (AGF) og Caisse Mutuelle Régíonale du Languedoc-Roussillon (Camurac), REG 1993, bls. 637. 33 81. gr. Rs er efnislega samhljóða 53. gr. EES-samningsins sbr. 1. nr. 2/1993 um EES. Ákvæðið fjallar um láréttar samkeppnishömlur og hljóðar þannig: „1. Eftirfarandi skal bannað og talið ósam- rýmanlegt framkvæmd samnings þessa: allir samningar milli fyrirtækja, ákvarðanir samtaka fyrirtækja og samstilltar aðgerðir sem geta haft áhrif á viðskipti milli samningsaðila og hafa að markmiði eða af þeim leiðir að komið sé í veg fyrir samkeppni, hún sé takmörkuð eða henni raskað á því svæði sem samningur þessi tekur til, einkum samningar, ákvarðanir og aðgerðir sem: a. ákveða kaup- eða söluverð eða önnur viðskiptakjör með beinum eða óbeinum hætti; b. takmarka eða stýra framleiðslu, mörkuðum, tækniþróun eða fjárfestingu; c. skipta mörkuðum eða birgðalindum; d. mismuna öðrum viðskiptaaðilum með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og veikja þannig samkeppnisstöðu þeirra; e. setja það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendumir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju. 2. Samningar og ákvarðanir sem grein þessi bannar eru sjálfkrafa ógildir. 3. Ákveða má að ákvæðum 1. mgr. verði ekki beitt um: - samninga eða tegundir samninga milli fyrirtækja; - ákvarðanir eða tegundir ákvarðana af hálfu samtaka fyrirtækja; - samstilltar aðgerðir eða tegundir samstilltra aðgerða, sem stuðla að bættri framleiðslu eða vöm- dreifingu eða efla tæknilegar og efnahagslegar framfarir, enda sé neytendum veitt sanngjöm hlutdeild í þeim ávinningi sem af þeim hlýst, án þess að: a. höft, sem óþörf eru til að hinum settu markmiðum verði náð, séu lögð á hlutaðeigandi fyrirtæki; b. slíkt veiti fyrirtækjunum færi á að koma í veg fyrir samkeppni að því er varðar verulegan hluta framleiðsluvaranna sem um er að ræða“. 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.