Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 63

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 63
sem þurfa að vera fyrir hendi til að þeim verði beitt við úrlausn ágreiningsmála fyrir dómstólum hér á landi og hvaða skilyrðum þurfi að vera fullnægt til að synja megi eða skuli um viðurkenningu, fullnustu eða afhendingu barna sem samningamir taka til, þrátt fyrir þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem íslenska rfkið hefur gengist undir með aðild sinni að samningunum. Viðfangsefnið verð- ur þannig takmarkað við afskipti dómstóla af slíkum málum, hér eftir nefnd af- hendingarmál, en inn í þá umfjöllun verður fléttað úrlausnum íslenskra dóm- stóla á þessu sviði. I lokin verður gerð örstutt grein fyrir störfum móttöku- stjómvalda í málum samkvæmt samningunum og mikilvægi þess að náin sam- vinna sé milli þeirra og dómstóla við meðferð og lausn afhendingarmála, en dómsmálaráðuneytið er móttökustjómvald hér á landi samkvæmt 5. gr. laga nr. 160/1995. Ég hef kosið að nota hin þjóðkunnu einkunnarorð Sophiu Hansen „Bömin heim“ sem yfirskrift greinarinnar til að leggja áherslu á það hve afstætt hug- takið „heim“ er orðið í nútímasamfélagi og til að minna á að íslenska ríkið og íslenskir dómstólar verða að virða reglur áðurnefndra laga og alþjóðasamninga, jafnvel þótt í því felist að íslenskt eða hálf-íslenskt bam sé afhent foreldri bú- settu í öðm ríki. 2. HVAÐ ER AFHENDINGARMÁL? í 75. gr. barnalaga nr. 20/1992 er kveðið á um úrræði sem forsjáraðila er rétt að neyta þegar forsjárlaust foreldri eða annar sá sem bam dvelst hjá neitar að afhenda það réttum forsjáraðila. Getur hann þá beint til héraðsdómara beiðni um að forsjá hans verði komið á með beinni aðfarargerð (innsetningargerð). Um málsmeðferð slíkra beiðna er fjallað í 13. kafla laga nr. 90/1989 um aðför. Færi gerðarbeiðandi fullnægjandi rök fyrir aðfararbeiðni úrskurðar héraðsdóm- ari um að gerðin skuli ná fram að ganga. í framhaldi er gerðarbeiðanda rétt að leita aðstoðar sýslumanns sem tæki bamið með lögregluvaldi úr vörslum við- komandi aðila neiti hann að afhenda bamið með öðrum hætti. Framangreindar reglur taka mið af því að báðir aðilar, sem yfirleitt eru for- eldrar bamsins, búi á íslandi. í þeim tilvikum að annað foreldrið býr í öðm ríki verður sömu reglum því aðeins beitt að viðkomandi ríki sé einnig aðili að Evrópusamningnum og/eða Haagsamningnum en þeir geta báðir komið til skoðunar í sama máli. Því verður að kanna hvort samningamir séu í gildi milli íslands og viðkomandi ríkis. Ef svo er ekki koma ákvæði samninganna og laga nr. 160/1995 ekki til frekari skoðunar við meðferð málsins nema dómsmálaráð- herra veiti sérstaka undanþágu og heimili að lögunum verði beitt í samskiptum Islands við ríki sem ekki em aðilar að samningunum, sbr. 2. gr. laga nr. 160/1995. Hefur ekki reynt á þetta úrræði sem beita yrði af mikilli varfæmi. Sé á hinn bóginn um samningsríki að ræða getur foreldri, sem búsett er í öðru ríki, beint aðfararbeiðni til héraðsdóms og krafist innsetningar í réttindi sín, þ.e. að fá að nýju umráð bams sem haldið er hér á landi. Á þetta reynir annars vegar þegar foreldrar hafa ekki útkljáð ágreining sín á milli um forsjá eða búsetu 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.