Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 66

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 66
Evrópusamningnum eða Haagsamningnum, en þess ber að gæta að aðildarríkj- um fer sífellt fjölgandi. Því er brýnt að dómendur kanni þetta sérstaklega í upp- hafi málsmeðferðar en upplýsingar um aðildarríkin og samningana almennt er að finna á vefsíðu Evrópuráðsins (www.coe.fr.) og vefsíðu fastaskrifstofu Haagráðstefnunnar um alþjóðlegan einkamálarétt (www.hcch.net). A þeirri síð- arnefndu má finna slóð inn á INCADAT sem er upplýsingabanki um dóma og úrskurði sem gengið hafa í aðildarríkjum að Haagsamningnum. Auðvelt er að leita í bankanum hvort heldur eftir efnisatriðum eða löndum, en þar er nú búið að færa inn fjóra íslenska hæstaréttardóma og einn úrskurð héraðsdóms. Allar úrlausnir sem settar eru inn í gagnabankann eru staðlaðar í uppsetningu til að gera leit auðveldari og bætt er inn í tilvísunum til annarra dómsúrlausna þar sem það á við. Dæmi um þetta er uppsetning á hæstaréttardómi 20. júní 2000 í máli nr. 181/2000. „Spánarmálinu“ svokallaða, en þar er í umfjöllun um málið vísað til skosks dóms þar sem reyndi á sömu eða svipuð sjónarmið. 4. MEGINMARKMIÐ EYRÓPUSAMNINGSINS OG HAAGSAMNINGSINS 4.1 Almennt Efni Evrópusamningsins og Haagsamningsins er nátengt enda markmið þeirra beggja að leysa vandamál sem upp koma þegar börn eru flutt með ólög- mætum hætti frá einu ríki til annars eða þeim er haldið í einu ríki gegn vilja forsjárforeldris í öðru, svo sem þegar börnum er ekki skilað í lok umgengni hins foreldrisins. Gildissvið samninganna takmarkast þó ekki við foreldra bams sem fara með forsjá eða annan forsjárrétt. Þeir geta einnig tekið til annarra, hvort sem um er að ræða einstaklinga, stofnanir eða opinbera aðila sem fara með slík réttindi. í umfjöllun minni mun ég þó eingöngu hafa foreldra í huga en ekki hefur enn reynt á aðild annarra í afhendingarmálum fyrir dómstólum hér á landi. Þótt samningunum sé ætlað að leysa sams konar vandamál er engu að síður í þeim gert ráð fyrir nokkuð mismunandi aðferðum til þess og er að því leyti á þeim skýr greinarmunur. 4.2 Nánar um Evrópusamninginn Evrópusamningurinn er viðurkenningar- og fullnustusamningur. Það er grundvallarregla samkvæmt samningnum að forsjárákvörðun sem tekin er í einu samningsríki, upprunaríkinu, skuli viðurkenna og fullnusta í öðru samn- ingsríki, móttökuríkinu, án tillits til þess hvort brottflutningur eða hald á barni feli í sér ólögmæta athöfn. Með ákvörðun er hér átt við dóma, úrskurði og aðrar ákvarðanir dómstóls eða stjórnvalds svo og dómsáttir og samninga sem hafa verið staðfestir af stjómvöldum, sbr. 4. gr. laga nr. 160/1995. Til að afhending bams sé ákveðin á grundvelli Evrópusamningsins í móttökunldnu verður að liggja fyrir ákvörðun samkvæmt framansögðu í uppranaríkinu um 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.