Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 70

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Side 70
að þessu leyti þótt málsmeðferð hafi yfirleitt tekið lengri tíma en sex vikur frá því að beiðni barst héraðsdómi en lengst hefur hún dregist í rúmlega tíu vikur. Aðeins einu sinni hefur verið óskað skýringa á drætti á málsmeðferð sem í sumum tilvikum að minnsta kosti verður réttlættur vegna óska um frekari gagnaöflun af hálfu aðila. Mega dómstólar una við það. I 17. gr. laganna segir að héraðsdómari skuli, áður en tekin er ákvörðun um fullnustu ákvörðunar samkvæmt Evrópusamningnum eða um afhendingu sam- kvæmt Haagsamningnum, kanna afstöðu bams sem náð hefur þeim aldri og þroska að rétt sé að taka tillit til skoðana þess en ákvæði 4. mgr. 34. gr. bama- laga eigi við þegar þessi afstaða bams sé könnuð. Þar segir að veita skuli bami sem náð hefur 12 ára aldri kost á að tjá sig um forsjármál nema telja megi að slíkt geti haft skaðvænleg áhrif á barnið eða sé þýðingarlaust fyrir úrslit máls- ins. Rétt sé einnig að ræða við yngra barn, eftir því sem á stendur miðað við aldur þess og þroska. Dómstólar geti falið sérfróðum manni eða mönnum að kynna sér viðhorf barnsins og gefa skýrslu um það. í sjö úrlausnum Hæstaréttar vegna Haagmála og þeim eina hæstaréttardómi sem gengið hefur á grundvelli Evrópusamningsins hafa sérfróðir menn komið að málum, ýmist sem meðdóm- endur í héraði eða sem ráðgefandi sérfræðingar, að frátöldu fyrsta Haagmálinu (H 1998 726). Um vægi álits sérfræðinganna fyrir úrslit einstakra mála verður fjallað í kafla 6 en athygli vekur að í fjórum Haagmálanna hafa sérfróðir með- dómendur, ávallt sálfræðingar, setið í héraðsdómi og tekið ákvörðun um niður- stöðu mála. Ekki verður um það deilt að héraðsdómara hafi í þeim tilvikum verið heimilt að kveðja til sérfróða meðdómendur, sbr. H 1998 3451. Á hitt ber að líta að niðurstöður í afhendingarmálum ráðast af mörgum þáttum sem falla utan sérfræði sálfræðinga og í raun snúast málin fyrst og fremst um túlkun á ákvæðum laga nr. 160/1995 og hliðstæðum ákvæðum í tveimur alþjóðasamn- ingum sem sálfræðingar eru ekki bærir um að taka afstöðu til í krafti sérþekk- ingar sinnar. Það er því eindregin skoðun greinarhöfundar að réttara sé að héraðsdómari feli sérfróðum manni, væntanlega sálfræðingi, að kanna viðhorf barns til þess deiluefnis sem um er að ræða en meti síðan vægi þess sérfræðiálits við úrlausn máls með hliðsjón af öðru því sem fram er komið í málinu. Ber hér sem fyrr að hafa í huga að ekki er um forsjármál að ræða. Rökin að baki 17. gr. era fyrst og fremst þau að tryggja að barn sem náð hefur tilskildum aldri og þroska fái að tjá sig og að á það sé hlýtt áður en ákvörðun er tekin í afhendingarmáli en niðurstaða máls skiptir bamið mjög miklu máli og getur haft úrslitaáhrif um framtíð þess. Þessi réttur til að láta í ljós eigin skoð- anir í málum sem bamið varðar er einnig tryggður í 12. gr. samnings Samein- uðu þjóðanna um réttindi bamsins frá 2. nóvember 1992 sem ísland er aðili að. Ekki er þar með sagt að farið verði eftir yfirlýsingum barnsins og ætluðum vilja þess hversu ótvíræður sem hann kann að hljóma enda margs að gæta í því sam- bandi. Böm era fljót að aðlagast nýjum heimkynnum. Vilji þeirra og afstaða til foreldra getur breyst á skömmum tíma jafnt fyrir meðvituð sem ómeðvituð áhrif frá nánustu fjölskyldu og umhverfi. Þá ber að hafa í huga að böm setja ekki 64
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.