Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 76

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 76
Bandaríkjunum í kjölfar umgengni við þau og nýlega synjaði undirréttur í Texas beiðni móður um afhendingu tveggja barnanna á þeim grunni að þau vildu búa hjá föður. Hins vegar féllst rétturinn á beiðni móður um afhendingu yngsta barnsins. Málið sætir áfrýjun. Næst reyndi á gildi Haagsamningsins fyrir Hæstarétti í áðumefndu „Spánar- máli “ (dómur 20. júní 2000 í máli nr. 181/2000). Héraðsdómari synjaði þar um afhendingu tveggja drengja, 10 og 13 ára, til föður á Spáni á grundvelli 3. töluliðs 12. gr. laga nr. 160/1995 og byggði niðurstöðu sína einkum á viðtölum tveggja sálfræðinga við eldri drenginn þar sem fram hefði komið skýr vilji drengsins til að búa áfram hjá móður á íslandi en heimsækja og umgangast föður eins oft og kostur væri. Þar sem drengurinn og yngri bróðir hans væru samrýmdir og hefðu alist upp saman þótti það ekki þjóna hagsmunum þess yngri að verða afhentur föður á Spáni og bræðurnir þannig skildir að. Hæsti- réttur taldi konuna ekki hafa sýnt fram á að dvöl barnanna á Spáni gæti leitt til alvarlegrar hættu á að þau yrðu fyrir andlegum eða líkamlegum skaða í skiln- ingi 2. töluliðar 12. gr. Þá var talið að ráða mætti af álitsgerðum sálfræðinganna að börnin væru ekki andvíg búsetu á Spáni en kysu sér dvalarstað hjá móður. Þar sem niðurstaða um að færa bæri börnin til Spánar fæli ekki í sér breytingu á því að bömin gætu áfram verið í umsjá konunnar þar í landi taldi Hæstiréttur ekki skilyrði til að synja um aðfarargerð á grundvelli 3. töluliðar 12. gr. Kon- unni var því gert að fara með börnin til Spánar eða stuðla að ferð þeirra þang- að innan tveggja mánaða frá dómsuppsögu en ella mætti taka bömin úr umráð- um hennar með innsetningargerð. Ef niðurstaðan er borin saman við dóm Hæstaréttar í „Bandaríkjunum 1“ sést að í seinna málinu voru börnin ekki talin andvíg flutningi til Spánar öfugt við niðurstöðu réttarins í hinu fyrra. Þá virðist það einnig hafa ráðið úrslitum í seinna málinu að konan gat farið með börnin til Spánar og verið þar með þau í sinni umsjá en í því fyrra lá fyrir að bandarískur dómstóll hafði ákveðið að faðirinn myndi hafa umráð barnanna eftir að þau kæmu til Bandaríkjanna og að bömin hefðu í því tilviki að minnsta kosti takmarkað tækifæri til samneytis við móður. Er hér um að ræða sjónarmið sem fram koma í niðurlagi 2. töluliðar 12. gr. laga nr. 160/1995, þ.e. að hætt sé við því að afhending komi barni í óbæri- lega stöðu. Næst ber að nefna hæstaréttardóm 6. desember 2000 í máli nr. 399/2000 sem ég kalla „Noreg I“. Málsatvik vom þau að íslensk kona, sem verið hafði í sambúð í Noregi með manni af kúrdískum upprana, flutti til íslands með 2 ára dóttur þeirra án samráðs við föður. Áður höfðu þau gert samning um sameigin- lega forsjá barnsins sem tilkynnt hafði verið um til þjóðskrár í Noregi. Með hliðsjón af framlagðri yfirlýsingu norska dómsmálaráðuneytisins, sbr. 3. mgr. 15. gr. laga nr. 160/1995, þar sem látið hefði verið uppi það ótvíræða álit að flutningur á barninu til íslands hefði verið brot á forsjárrétti föður samkvæmt norskum bamalögum og 3. gr. Haagsamningsins taldi Hæstiréttur óhjákvæmi- legt að líta svo á að um ólögmætan brottflutning hefði verið að ræða í skilningi 70
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.