Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 77

Tímarit lögfræðinga - 01.02.2002, Page 77
2. mgr. 11. gr. laganna. Rétturinn staðfesti að því leyti niðurstöðu héraðsdóms, sem skipaður var tveimur embættisdómurum og sálfræðingi, og lagði fyrir kon- una að fara með barnið eða stuðla að för þess til Noregs innan tveggja mánaða en eilegar væri manninum heimilt að krefjast innsetningargerðar. Vamir konunnar voru meðal annars studdar 2. tölulið 12. gr. og á því byggt að ofbeldi mannsins gagnvart henni og önnur hegðun í garð hennar og bamsins gæfi tilefni til að ætla að barnið gæti orðið fyrir andlegu tjóni eða að minnsta kosti komist í aðra óbærilega stöðu ef fallist yrði á afhendingu þess. Maðurinn byggi í litlu og einangruðu samfélagi Kúrda þar sem heimilisaðstæður væru óviðunandi, jafnræðis væri ekki gætt í samskiptum kynjanna og almennt væri litið illa á böm sem getin væm í blönduðum samböndum. Um þetta segir í nið- urstöðu héraðsdóms sem Hæstiréttur staðfesti með vísan til forsendna: „Ekkert er fram komið í málinu, sem rennir stoðum undir þessa fullyrðingu ... [konunn- ar], þó svo að heimilishættir ... [mannsins] kunni að þykja óvenjulegir og fram- andi miðað við íslenskar aðstæður. Hið sama kann ... [manninum] og hans fjöl- skyldu að þykja um hérlendar uppeldisaðstæður og -aðferðir“. Var því ekki fallist á að skilyrði 2. töluliður 12. gr. væri fyrir hendi. I dómi Hæstaréttar 12. desember 2000 í máli nr. 403/2000 („Noregur II“) voru málsatvik þau að íslensk hjón, búsett í Noregi, fengu í maí 1998 leyfi til skilnaðar að borði og sæng hjá norskum yfirvöldum. Var þá ákveðið að þau færu sameiginlega með forsjá þriggja barna sem yrðu með lögheimili hjá móður á íslandi en faðirinn bjó áfram í Noregi. Eftir þetta reis ágreiningur milli þeirra um hvar eldri sonur þeirra, 9 ára, ætti að eiga heimili. Af því tilefni var leitað álits sálfræðings sem komst að þeirri niðurstöðu að hagsmunum drengsins yrði betur gætt og þörfum hans betur fullnægt með búsetu hjá föður. Þessu til sam- ræmis gerðu foreldramir samning 8. janúar 1999 þar sem meðal annars kom fram að þau hefðu ákveðið að lögheimili drengsins flyttist til föður í Noregi. Var þetta síðar áréttað í skilnaðarsamningi 25. júní 1999 og einnig í staðfestu samkomulagi um meðlagsgreiðslur með bömunum. Aður hafði drengurinn í janúar 1999 flutt á heimili föður síns í Noregi. Eftir það kom drengurinn nokkr- um sinnum til íslands til umgengni við móður, síðast 13. júlí 2000. Atti hann að halda aftur til Noregs réttum mánuði síðar en ekki varð af þeirri utanför. Mað- urinn krafðist þess að drengurinn yrði tekinn úr umráðum móður með beinni aðfarargerð og fenginn sér. Héraðsdómur, sem skipaður var embættisdómara og tveimur sálfræðingum, synjaði um afhendingu meðal annars með vísan til 3. töluliðar 12. gr. laga nr. 160/1995. í forsendum dómsins segir að drengurinn hefði í viðræðum við dómendur ekki tekið afgerandi afstöðu eða sagt berum orðum á hvorum staðnum hann vildi búa. Hann hefði þó nefnt ýmsa kosti þess að búa hér á landi svo sem návist við systkini sín og móður, félagsskap og taldi að hér væri mun meira um að vera. Því næst segir: „Hinir sérfróðu meðdóms- menn eru á einu máli um það, að B [drengurinn] hafi í viðtalinu tekið eins afdráttarlausa afstöðu eins og hann hafi treyst sér til við þær erfiðu aðstæður sem hann var þar í, þar sem honum var gefinn kostur á að velja á milli foreldra 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.