Árbók Háskóla Íslands

Årgang

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Side 159

Árbók Háskóla Íslands - 31.12.2000, Side 159
Framtíð hverra? Lítum nú nánar á hverja spurningu fyrir sig. Framtíð hvers eða hverra skiptir máli að hugleiða? Við getum haft í huga framtíð okkar sjálfra sem einstaklinga. sem hóps eða þjóðar og líka framtíð alls mannkyns og jafnvel atls lífs á jörðinni. Allt er þetta órofa heild. Framtíð okkar sjálfra verður að hugsa í tengslum við þau skil- yrði sem öllu öðru lífi eru búin á jörðinni. Þótt sérstaða okkarsem hugsandi vera sé mikil meðat annarra lífvera þá deilum við lífinu með þeim og hljótum þar af leiðandi að hugsa um hag alls sem lifir um leið og við hugsum um eigin hag. Það sem skýrast greinir okkur frá öðrum lifandi verum er hæfileikinn til að hugsa um lífið í heildarsamhengi og gera okkur grein fyrir hvað er til góðs og hvað er tit ills fyrir lífríki jarðar. Þess vegna hljótum við að velta fyrir okkur framtíð mannlegrar hugsunar um lífið og okkur sjálf. Vera má að framtíð tífsins á jörðinni verði öðru fremur undir því komin hvernig við temjum okkur að hugsa um heiminn og hag tífveranna sem byggja hann með okkur. Og þá kann að skipta miktu að við gerum okkur tjósa grein fyrir því hvað það merkir að hugsa um eitthvað, hvaða kröfur hugsunin sjálf gerir til okkar. Hvað öfl ráða mótun framtíðar? Næsta spurning var þessi: Hvaða öfl ráða öðru fremur mótun framtíðarinnar? Við svo stórri spurningu eru ekki til nein einhlít svör. Við höfum sjátf áhrif á hvernig framtíðin mótast. ekki aðeins okkar eigin. heldur alls lífs á jörðinni. Núorðið vit- um við heilmikið um þau öfl sem eru að verki í náttúrunni, þótt mikið skorti á að við getum séð fyrir hverju náttúran kann að taka upp á. Ekki er útitokað að breyt- ingar verði á lofthjúpi jarðar sem hafi áhrif á hitastig eða á hafstrauma og ger- breyti framtíð lífs á jörðunni. Breytingarnar kynnu að eiga sér stað af okkar völd- um. þótt ekki hafi það verið ættunin. Ákveðnar félagslegar aðstæður kynnu líka að skapast hjá mannkyninu. til að mynda vegna fólksfjölgunar. sem hefðu ófyrir- sjáanleg áhrif á hagkerfi heimsins og ógnuðu öllum samskiptum manna á meðal. Að margra dómi gæti hið síbreikkandi bil milli ríkra þjóða og fátækra skapað fyrr eða síðar torteyst vandamál. Þess vegna sé fátt ef nokkuð brýnna en að hefja skipulega viðleitni í þá veru að skipta gæðum heimsins á rétttátari hátt meðal þjóða heimsins. En til að svo megi verða þurfa hinar ríku þjóðir að temja sér ann- an hugsunarhátt en þann sem ríkt hefur til þessa í samskiptum þeirra við fátæk- ari þjóðir. Og einnig þarf að líta sér nær og leiða hugann að því hvað megi betur fara í okkar samfélagi. okkar eigin garði og hvernig við viljum vinna að því á ábyrgan hátt að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir. Hvað getum við gert? Þriðja spurningin var: Hverjir eru möguleikar okkar á að hafa áhrif á gang mála í heiminum? Af því sem þegar hefur verið sagt er augljóst í hverju möguteikar okkar fetast: í þekkingu - þekkingu á tögmálum náttúrunnar. á þjóðfétaginu sem við sjálf mótum og þekkingu á sjálfum okkur. getu okkar og takmörkunum. Þess vegna verður að gera sér sem tjósasta grein fyrir hvað þekking er, í hverju hún er fólgin og einnig hvernig við nýtum hana til að skipuleggja athafnir okkar og taka ákvarðanir. Hér er hvorki staður né stund til að halda fræðilegan fyrirlestur um þekkingu en mér hefur stundum fundist að Háskólinn ætti að ieggja meiri rækt við að fræða nemendursína og þá einnig ykkur. ágætu kandídatar. um einkenni fræðilegrar þekkingar. þýðingu hennar. merkingu og takmarkanir. Sérhæfingin. sem ríkir í heim vísinda og fræða. á vissulega sinn þátt í því að nýjar niðurstöður komi fram og árangur náist. Hjá henni verður ekki komist. En sérhæfingin á ekki að hindra það að fólk taki til yfirvegunar hina fræðilegu þekkingu almennt. Sú hagnýta notkun, sem nú á sér stað í þjóðfélaginu. á niðurstöðum, kenningum og aðferðum vísinda kallar á stíka yfirvegun. Störf þeirra sem vinna að öflun, varð- veislu og miðlun þekkingar verða æ ábyrgðarmeiri og þess vegna þarf sífellt að vega og meta þýðingu þekkingarinnar í manntífinu og fyrir mannlífið og þar með hvað það er í veruleikanum sem kallar á kunnáttu fólks til að afla vitneskju og skilnings og miðla hvorutveggja tit annarra. Hvað er þekking? Þess vegna langar mig til að reifa örlítið þekkingarhugtakið sjálft. í daglegu tali er þekking oft lögð að jöfnu við það sem við teljum okkur vita af reynslu eða af því sem okkur hefur verið sagt. Stík þekking er þá safn upptýsinga eða vitneskju um eitt og annað sem býr í mannfólkinu sjálfu eða hefur verið gert fólki tiltækt með einhverjum hætti, í handbókum. á tötvuneti o.s.frv. í daglegu lífi og störfum okkar erum við háð því að geta aflað alls kyns upplýsinga: vægi þeirra er raunar orðið stíkt að oft ertalað um nútímasamfélag sem „upplýsingaþjóðfélag". þjóðfélag sem einkennist öðru fremur af öflun og dreifingu upplýsinga af öllu tagi. Fræðileg þekking. sú þekking sem háskólar leitast við að afla, varðveita og miðla.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Árbók Háskóla Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Háskóla Íslands
https://timarit.is/publication/588

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.